20.1.2007 | 18:09
Kúrt við kamínuna.
Þá er dagur hins merka Þorrablóts runninn upp og trogið komið á sinn stað í Félagsheimilinu. Þar tóku á móti okkur nefndarkonur klæddar sem laganna verðir til að hafa eftirlit með því að farið væri eftir þeim reglum sem þar gilda og að allar hefðir væru í hávegum hafðar. Sem sé, að enginn óviðkomandi sem ætti þangað ekkert erindi, myndi mæta og hleypa þar öllu í bál og brand.
Vinur minn og nágranni, Magnús Ólafs Hansson var mættur brosandi og sæll, þrátt fyrir allar yfirlýsingar þess efnis að mæta ekki á opinberar samkomur á þessu kjörtímabili. Hann er búin að vera eitthvað argur eymingja karlinn síðan í kosningunum s.l. vor. Ég skemmti mér konunglega yfir því að hann skuli ætla að mæta en sagði honum jafnframt að hann myndi fá umfjöllun um heimskuhátt sinn á blogginu mínu. Hann tók því fagnandi enda alla jafna mjög geðprúður maður. Mér finnst svo gott að vita af honum á blótinu og ég vona að hann eigi eftir skemmta sér vel í kvöld.
Spilavist.
Það var stórskemmtilegt á spilavistinni í gærkvöldi. Spilað var á fimm borðum og mikil stemning ríkti meðal manna. Sigurvegarar kvöldsins voru Arnar Smári og Gaui Ingólfs, sem hét Guðjóna í gærkvöldi og spilaði sem kona, enda frekar stelpulegur. Þeir hlutu að launum geisladiskinn með Ólafi Kristjánssyni, tónlistarmanni og fyrrverandi bæjarstjóra. Þeir sem voru á botninum með fæst stigin voru Gummi Einars og pabbi, en þeir fengu kerti og servíettur í verðlaun. Ég er búin að reyna að fá pabba til að koma en ekki gengið fyrr en nú en hann þótti liðtækur spilari í denn. Hann á örugglega ekki eftir að láta sig vanta á spilavistina í framtíðinni. Arnar Smári fékk líka verlaun fyrir að hafa flestu stigin eftir þrjár síðustu keppnir og fór heim með flösku af eðaldrykk.
Kúttmagakvöld.
Lionmenn funduðu í Kjallaranum í gærkvöldi um kúttmagakvöldið sem er árlegur viðburður hjá Lion. Það verður að þessu sinni haldið í Péturskaffi í Einarhúsi 17. febrúar nk. og mun ég halda utan um það með aðstoð nefndarinnar. Þar verður að vanda mikið fjör og mikið gaman. Hefð er víst fyrir því að kórdrengir eins og Hafþór Gunnarsson og aðrir valinkunnir andans menn segi biblíusögur og kyrji sálma yfir kúttmögunum og þeir fullyrtu við mig í gær að allir brandarar sem sagðir væru á þessu kvöldi væru fyrir ofan mitti. Ég veit svo sem ekki hvar mittið er á þessum ágætu piltum en miðað við það sem ég hef heyrt af þessum kúttmagakvöldum þá hlýtur það að vera ansi neðarlega. Ég hef oft óskað þess að fá að vera fluga á vegg þegar þeir eru komninr í gírinn og farnir að segja sögur á slíkum kvöldum og nú legg ég vel við hlustir.
Þorrablót.
Mig langar að halda Þorrablót í Péturskaffi 10. febrúar ef næg þátttaka fæst og ætlar Benni Sig. að vera mér til aðstoðar. Benni er frábær, svo ljúfur og góður drengur. Okkur langar að hafa þetta svoldið gamaldags. Hver veit nema Vertinn semji gamanvísur, Benni fer létt með að flytja þær enda stórgóður söngvari og liðtækur á hin ýmsu hljóðfæri. Hver veit nema það verði slegið upp harmonikkuballi og boðið verði upp á vöfflur og súkkulaði í hléi líkt og gert var á skemmtunum í Stúkuhúsinu hér forðum. Kamínan sem súkkulaðið var hitað á í Stúkuhúsinu í upphafi sómir sér vel í Péturskaffi en við fengum kamínuna að gjöf frá Bjarna Ingólfs áður en Stúkuhúsið var rifið. Á þetta þorrablót fá væntanlega allir að fara, gagnkynhneigðir sem samkynhneigðir, tvíkynhneigðir og sjálfkynhneigðir, giftir og ógiftir og flest þar á milli. Ég á kannski eftir að útbúa reglur síðar og læt ykkur frétta af því jafnóðum.
Að öðru leiti var rólegt í Kjallaranum í gær og nótt. Svo rólegt að ég sofnaði í stólnum við kamínuna undir sögum gesta um friðlandið á Hornströndum og öðrum sögum af mönnum og málefnum. Skemmtilegar sögur en ég var eitthvað svo þreytt. Ég er aldeilis dálaglegur gestgjafi að sofna svona. Gunna Ásgeirs prjónaði af hjartans list á meðan og hafði umsjón með barnum. Einn útprjónaður barnagalli var pantaður hjá henni á fimm mánaða gamal barn. Já, það er hægt að fá nánast allt í Kjallaranum.
Það er best að fara að hafa sig til fyrir blótið. Ég bauð borðfélögum mínum í smá partý í Einarhúsi kl. sex. Það verður án efa skemmtilegt.
Læt í mér heyra á morgun.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Ha, fékk pabbi kerti og servíettur!!? Djéskoti sem kallinn hlýtur að vera lukkulegur
Leiðinlegt að heyra hvað þú varst "þeytt" þarna við kamínuna...
Auður M. (IP-tala skráð) 20.1.2007 kl. 16:53
Ein að velta sé upp úr smáatriðunum.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 20.1.2007 kl. 17:36
Ég þarf að fara að láta sjá mig þarna í spilavistinni, þetta spilafifl sem ég er nú líka.
Eru kannski reglur þar líka. Kannski bara fyrir bláeygða eða einfætta. Aldrei að vita.
Ég skrifa níðgrein um þig ef þú ferð að setja aðrar reglur en "reglur hússins" með þorrablótið sem þú ætlar að halda. Heyru það
mæti kannski. Ef kallin verður ekki að vinna
Halla Signý (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 11:26
Einfættir eru sérstaklega velkomnir á spilavist, sérstalega einfætti dvergurinn sem stelur alltaf öðru sokkaparinu úr þvottavélinni hjá mér þegar ég er að þvo. Þessi dvergur eru búin að ofsækja mig alla mína búskapartíð. Ég sit uppi með á annað hundrað sokkapara sem passa bara á annan fótinn. Mig langar að finna þann einfætta dverg í fjöru. Mál til komið að hann hætti að spila með mig.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 22.1.2007 kl. 00:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.