Fugl sem flýgur hratt.

Það má með sanni segja að tíminn er fugl sem flýgur hratt, lífið bókstaflega hendist áfram. Mér finnst ég stefna hraðbyri á grafarbakkann þessa dagana og ég virðist ekki komast yfir að gera nærri allt sem mig langar að gera yfir daginn.  Áður en varir er dagurinn lagstur til hvílu og nóttin búin að hreiðra um sig. Mér er mikið í mun að ná að blogga eina færslu áður en ég leggst útaf og svíf í draumalandið og er reyndar upptekin af því meira og minna allan daginn að upphugsa eitthvað viturlegt til að skrifa um.

Dagurinn hófst seint hjá mér, enda kúrði ég frameftir.  Það er svo notalegt að geta leyft sér að lúra undir sænginni í rökkrinu og dorma fram eftir morgni ef maður er þreyttur og það eru í raun mikil forréttindi að geta það. 

Þegar ég loksins drattaðist framúr svaraði ég  nokkrum bréfum í tölvunni sem mér höfðu borist . Við vinkonurnar, ég og Halla Signý skiptumst á skoðunum varðandi reglur Þorrablótsins en við erum algjörlega á öndverðum meiði í þeim efnum.  Hún segir mig forpokaða kerlingu og ég tek alveg undir það hjá henni. Við Halla erum búnar að þekkjast í tugi ára og báðar fæddar 1. maí og erum því fastar á okkar skoðunum og hvorugar gefa tommu eftir.  Bara gaman að því.

Bæjarmálin.

Minnihlutinn í bænum hittist á fundi í hádeginu að vanda fyrir bæjarstjórnarfund og ræddi bæjarmálin. Við eigum einn fulltrúa í bæjarráði og erum því vel upplíst um þau verkefni sem bæjarráðið er að vinna að hverju sinni. Ég, Elías, Baldur og Elín varamaður erum mjög gott teymi og vinnum ákaflega vel saman svo ég segi sjálf frá.  Bæjarstjórnarfundur var síðan haldinn seinnipartinn og þar voru fundargerðir bornar upp til samþykktar eins og gengur.  Farið var yfir seinni umræðu fjárhagsáætlunar og gjaldskrár sveitarfélagsins.  Skemmst er frá því að segja að samvinna meiri og minnihlutans gengur mjög vel, enda stefnum við öll í bæjarstjórninni að sama markmiði, að vinna að velferð bæjarins okkar.  Það eru vissulega skoðanaskipti um hin ýmsu málefni en okkur hefur að mínu viti,  lánast að taka á þeim af skynsemi.  Baldri var hælt mikið fyrir sinn þátt í fjárlagagerðinni enda bráðskarpur strákur og vel gefinn. Ég get ekki annað en tekið undir það og er hæst ánægð með að hafa hann í mínu liði. Grímur bæjarstjóri ber svo höfuð og herðar yfir okkur öll hin, enda yfir tveir metrar á hæð og bara hreint ágætur og stendur sig vel.

Þorrablótið.

Vertinn hefur nóg að gera, því ég sé um veitingarnar á Þorrablótinu og þarf því að passa upp á að næganlega mikið magn af guðaveigum verði til á barnum fyrir blótsgesti.  Ég þarf að ráða til mín mannskap til að vinna og það er að mörgu að hyggja.  Gunna Ásgeirs vara Vert í Kjallaranum stendur sína plikt á barnum eins og vanalega. Ég veit hreint ekki hvar ég væri stödd ef hún væri mér ekki til aðstoðar.  Hún er algjör perla þessi kona.

FHB.

Blótið er haldið í Félagsheimili Bolungarvíkur sem var vígt árið 1952. Það er komið nokkuð til ára sinna og brýn þörf á því að fara í endurbætur á húsinu. Nefnd var skipuð á síðasta kjörtímabili sem vinnur að því verki.  Verið er að teikna breytingar á húsinu og miðast það allt í rétta átt.  Aðal vandamálið er fjármögnun þessa verks en þetta er mjög kostnaðarsöm framkvæmd.  En þarna slær nú hjartað okkar og við teljum afar brýnt að reisa þetta hús aftur til vegs og virðingar.

Á sama tíma að ári.

Í kvöld hitti ég Guðlaugu trogfélaga minn.  Við fórum yfir helsta slúðrið sem gerst hefur í bænum frá síðasta blóti og gátum hlegið mikið. Hláturinn lengir lífið. Lauga var að baka rúgbrauðið og skatan beið á eldhúsborðinu eftir því að verða stöppuð.  Ég fæ síðan magálinn og harðfiskinn hjá pabba. Hrútspungana, sviðasultuna og lundabaggana kaupi ég upp úr súr, og sviðin og hangikjötið síð ég á morgun. Þvílíkur matseðill, ég er þegar farin að fá vatn í munninn. Reyndar er smá kvíði í mér vegna þess að nú verð ég að bregða út af þeim vana að fá mér minn uppáhaldsdrykk á borðhaldinu með þorramatnum.  En ég hef víst klárað bjórkvótann minn og verð að sætta mig við það.  Drekk bara kalt og svalandi vatn og brosi svo framan í heiminn.

Spilavist.

Spilavistin er á föstudagskvöldið 19. janúar kl. 21:00.  Allir að mæta ,vegleg verðlaun í boði.

Segi þetta gott í bili.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Hæjj Mamma roslaegd

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 19.1.2007 kl. 01:37

2 identicon

Hæjj Mamma flott Blogg:P:P
-Lilja

Lilja (IP-tala skráð) 19.1.2007 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband