18.1.2007 | 02:18
Í Bolungarvíkinni er björgulegt lífið.
Svona hljóðar upphafsstefið í Bolungarvíkurbrag eftir Gísla Ólafsson úr Skagafirði sem ortur var árið 1916. Bragurinn er í 17 erindum en oftast eru bara sungin fyrstu tvö erindin. Allir Bolvíkingar geta tekið höndum saman og sungið þessi erindi sem einn maður og þá skyggir ekkert á samheldni bæjarbúa, allir halda lagi og dilla sér með í góðum takti. Segja má að þessi söngur sé okkar sameiningartákn og þegar við kyrjum hann saman á góðri stundu, fyllumst við stolti yfir því að vera Bolvíkingar.
Þessi þjóðsöngur okkar er sunginn af miklum eldmóði á Þorrablóti hér í Bolungarvík sem annálað er fyrir sérstöðu sína og hefðir sem þar hafa ríkt. Þar mæta konur í Íslenskum þjóðbúningi og karlar skarta í auknu mæli þjóðbúningum líka. Þar bjóða konurnar sínum ekta mönnum til blóts og gera vel við þá í mat og drykk. Skemmtinefnd stórskemmtilegra kvenna halda úti skemmtidagskrá meðan á borðhaldi stendur og gera góðlátlegt grín að bæjarbúum. Skemmst er frá því að segja að ég vil halda í þær hefðir sem ríkja á Þorrabótinu og vil ekki raska þeirri sérstöðu sem blótið hefur, en það er nú haldið 62. sinn og hefur alltaf verið með svipuðu sniði. Þorrablótið er alltaf haldið fyrsta laugardag í Þorra.
Ég ætla að bjóða mínum bónda á blótið líkt og ég hef gert til margra ára. Við hjónin sitjum alltaf á sama stað og borðum úr sama troginu, þrælgóðan þorramat, með sömu trogfélögunum og eigum alltaf jafn skemmtilega kvöldstund einu sinni á ári. Engu má breyta og allt verður að vera eins. Það er gott að geta gengið að einhverju vísu. Ekki spillir svo að geta dansað vals og ræl við hann Óskar á ballinu á eftir, en það hef ég gert á hverju einasta ári síðan ég fór að fara á blót enda er hann stórgóður dansari sem fær mig bókstaflega til að svifa um dansgólfið. Reyndar eru nokkrir liðtækir dansherrar sem ég hef þegar sett á danslistann minn fyrir þetta Þorrablót.
Eitt er þó stundum breytilegt frá ári til árs en það eru sjálfir þjóðbúningarnir sem ýmist þrengjast eða víkka. Það er þó algengara að þeir þrengist með árunum enda eru þeir flestir saumaðir úr mjög rakadrægu efni sem gerir það að verkum að þeir skreppa saman við geymslu og verða þröngir og jafnvel hætta að hylja helstu fellingarnar og einn og einn fitukeppur á í vandræðum með að koma sér fyrir innan þjóðbúninga klæðanna. Ég þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því í ár, hef lagt töluvert af á undanförnum mánuðum. Kílóin farin að fjúkja óumbeðin og stundum hef ég af því áhyggjur að ég verði svo horuð að ég viti ekki hvort mér sé illt í maganum eða bakinu ef ég fæ verk um mig miðja. En nóg um það.
Dagurinn í dag við nokkuð annasamur og viðburðaríkur. Ég vaknaði eldhress og uppfull að sjálfsánægju yfir því að vera loksins farin að blogga. Er þakklát fyrir viðbrögðin sem ég hef fengið við þessu uppátæki mínu. Hélt áfram að vinna bókhaldið fyrir hádegi og er bara komin vel á veg. Hrönn las ekkert upp úr biblíunni sinni í morgun en hún er oft niðursokkin í lestur bæklings sem borinn var í hús fyrir skemmstu en upp úr honum er hægt að panta ótrúlegustu hluti sem eru bæði gagnlegir og bráðnauðsynlegir hverum manni. Þar er m.a. hægt að panta allt frá unaðargeli fyrir konur sem vilja betra kynlíf upp í margnota ryksugupoka sem passar í allar ryksugur og allt þar á milli. Þar sem bóndinn á afmæli á föstudaginn fór ég að glugga í þennan pésa og velti fyrir mér hvort ég ætti að gefa honum BANDEX úthaldskrem fyrir karlmenn, en rak þá augun í falleg og viðkunnanleg þokugleraugu sem þykja bráðnauðsynleg í slæmu skyggni. Ætli ég panti þau ekki á morgun.
Í hádeginu fór ég síðan inn í hesthús að gefa skepnunum, en við mæðgurnar eigum allar hesta og þeim þarf að sinna. Það er mjög gefandi að sinna skepnum og merkilega gaman að moka skít. Ég hef reyndar ekki farið á bak síðan um jólin og þarf að fara að vera duglegri við að fara í útreiðatúra.
Ég fór síðan á fund í stýrihópnum sem vinnur að undirbúningi vegna íbúaþingsins og heldur sú vinna áfram.
Ég var með kvöldmat fyrir Lion menn en þeir funda einu sinni í mánuði og borða hjá mér. Í dag gekk allt á afturfótunum í matseldinni. Kjötið skrapp svo saman við suðuna að ég fékk hálfgert áfall, súpan brann við, steikarpannan gaf upp öndina og sósan hljóp öll í kekki. Ef það hefði nú verið allt og sumt þá hefði nú allt svosem verið í lukkunnar velstandi en á ögurstundu sló öllu rafmagni út í Einarshúsinu og leit út fyrir að blessaðir karlarnir mínir fengu ekkert að borða. Þeir sátu samt svo ljúfir og góðir við kertaljós og töluðu saman í hálfum hljóðum og tóku þessum aðstæðum með stóískri ró. Á meðan fóru rafvirkjar og orkubúsmenn hamförum við að koma rafmagninu á og viti menn, það varð ljós og meðlimir Lion klúbbs Bolungarvíkur fengu sinn mat og fóru vonandi saddir og sælir heim.
Læt þetta duga í bili. Þetta var þrátt fyrir allt góður dagur og ég hlakka til þess næsta.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sæl vinkona
Gaman að þessu
Á örugglega eftir að fylgjast með bloggunum þínum. Alltaf gaman að fylgjast með fréttum úr víkinni. Vildi nú geta verið komin á þorrablótið góða, því maður skemmti sér nú alltaf vel þar.
Mæja Hauks
Mæja Hauks (IP-tala skráð) 18.1.2007 kl. 13:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.