30.3.2010 | 12:56
Beðið við hliðið
Fréttin um að maðurinn með ljáinn hefði höggvið skarð í syskinahópinn barst um miðjan dag í gær og eftir sat lítil systir með sorg í hjarta. Gylfi, stóri bróðirinn sem var hennar sverð og skjöldur á æskuárunum var hrifsaður miskunnarlaust á braut og ekki gafst tóm til að kveðja. Þessi litla snót leit ekki upp til neins eins og þessa stóra og stæðilega bróðurs sem átti hug hennar allan í uppvextinum þegar væntumþykjan var skilyrðislaus og ástin einlæg. Tilhlökkunin um að fá þennan framandi bróðir heim um jól og páska og á hverju sumri gerði lífið í litla sjávarþorpinu fyrir vestan svo ævintýralegt og minningin um þessar stundir er núna svo dýrmæt.
Það eru reyndar mörg ár síðan beðið var á bryggjunni eftir bátnum sem flutti hann heim og minningin er enn ljóslifandi þegar staðið var við hliðið til að fagna honum er hann kom með rútunni sem færði hann frá flugvellinum færandi hendi með leikföngin sem heilluðu hvað mest í leikfangabúðum höfuðborgarinnar. Þá var grátið þegar hann fór eins og nú og söknuðurinn er jafnsár og þegar hann kvaddi og hélt til heimkynna sinna hér forðum. Hann hefur núna valið sér annan samastað þar sem hann býr í haginn fyrir systur sína og mun hann trúlega standa á bryggjunni eða bíða við hliðið þegar rútan ekur í hlað og þá er vissara að hafa gott veganesti í farteskinu eftir lífsins gönguna til að leggja á borð með sér.
Eftir situr mamma með slitinn streng því eina perluna vantar í lífsfestina hennar og skaparinn er litinn hornauga fyrir þá ákvörðun að taka við drengnum hennar svona snemma. Það er þó ekkert endilega sjálfsagt að þeir sem komi fyrstir, fari fyrstir og köld áminning þess efnis var send til okkar í gær.
Sársaukinn er stingandi sár og skrefin þungbær út í daginn og þó svo að leið okkar systkinanna hafi ekki alltaf legið í sömu átt var hann til staðar að reyna að feta hina erfiðu lífsins línu. Við munum öll sakna þessa bróðurs sem var órjúfanlegur þáttur í lífi okkar frá upphafi og þótt lífið þyki óréttlátt þessa stundina er það vitað með vissu að tíminn læknar sárin og minningin um hann eins og hann var þegar stelpan sem þetta ritar var lítil,verður ómetanlegur gimsteinn í minningarsjóðnum um aldur og ævi.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Innilegar samúðarkveðjur til þín og þinna Ragna mín. Ég man vel eftir Gylfa þegar við Gaui vorum "upp á okkar besta". Það fylgdi því alltaf spenna þegar Gylfi kom í heimsókn Vestur. Það var litið upp til þessa merkilega manns. Megi hann hvíla í friði. Kær kveðja, Jómmi.
Jónmundur Kjartansson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 15:08
Innilegar samúðarkveðjur til þín og þinna, megi Guð vera með ykkur. Kær kveðja Auður
Auður (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 15:24
Ég vil votta þér og fjölskyldu þinni samúð mína.
Sigurvin Guðmundsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 15:57
Innilegustu samúðarkveðjur til þín og fjölskyldu þinnar. Ég á Gylfa margt að þakka fyrir frábæra kennslu í rafvirkjanáminu. Alltaf kátur og uppátækjasamur, frábær fagmaður og kennari. Fari hann í friði
Henry Bæringsson Ísafirði
Henry Bæringsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 16:18
Kæra Ragna og fjölskylda.
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, vegna andláts bróður þíns.
Áslaug Jóh. Jensd.
Faktor, 30.3.2010 kl. 17:57
innilegustu samúðarkveðjur til þín og þinna. Gylfi var frábær vinur og alltaf gleðgjafi.
Hans verður sárt saknað.
Helen Gunnarsdóttir.
Helen Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 23:37
Takk fyrir hlýjar kveðjur
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 31.3.2010 kl. 09:52
Við Sendum ykkur öllum okkar ynnilegustu samúðarkveðjur Ragna mín, en eins og sagt er : Engin ræður sínum næturstað. Berðu mömmu þinni sérstaka kveðju frá mömmu, gefðu henni kram og koss frá okkur.
Baldur Bjarnason
Lára Kristjánsdóttir
Gautaborg
Baldur Bjarnason (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 10:32
Innilegar samúðarkveðjur til þín og fjölskyldu þinnar Ragna!
Ásta María (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 13:12
Takk elsku Gylfi vinur minn hvað þú varst alltaf góður við mig.
Þú varst alltaf að gera eitthvað fyrir mig.
þú mundir alltaf eftir afmælinu mínu.
þú fórst með mig á flugvellinn þinn og leyfðir mér að stija í flugvélini þinni
Svo fórum við í ferðalag á húsbílnum þínum til Akureyrar og skoðuðum marga fallega staði.
Á Akureyri hittum við Önnu Kristínu, Villa, Alexander og Auðun og þau höfðu líka rosalega gaman að keyra í húsbílnum.
Ég er búin að biðja mömmu að gera myndband um okkur og ég ætla að setja það á bloggið mitt.
Ég sendi allri fjölskyldu þinni og vinum mínar/okkar innilegar sámúðarkveðjur.
Ég sakna þín mikið, en ég veit að þú ert núna heima hjá Jesú.
Bless, bless og takk fyrir allt,ég gleymi þér aldrei, þinn vinur Alexander
alexander (IP-tala skráð) 2.4.2010 kl. 00:34
Innilegar samúðarkveðjur til þín og þinna Ragna mín! Maður skilur ekki alltaf ...
Guðný Sig (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.