16.1.2007 | 23:55
Einu sinni er allt fyrst.
Þar sannast máltækið að einu sinni sé allt fyrst, því nú hefur Vertinn í Víkinni gripið til þess ráðs að fara að blogga. Ekki veit ég hvort það verður til frambúðar en þetta er þó byrjunin á vonandi farsælu og langlífu bloggi.
Ætla ég hér á þessari síðu að fjalla um hugarefni mín frá degi til dags og færa hugsanir mínar í letur. Sumt mun trúlega virðast ómerkilegra en annað og verður hver og einn að meta það hversu áhugavert umræðuefnið er hverju sinni.
Umfjöllun um Kjallarann í Einarshúsi mun sjálfsagt taka meira pláss en minna hér á þessari síðu en ég er Vert á þeirri ágætu krá og stýri þar öllu með styrkri hendi. Hér mun ég segja frá því helsta sem þar gerist og auglýsa þær uppákomur sem verða haldnar í Kjallaranum jafnóðum.
Þar sem ég er bæjarfulltrúi í hlutastarfi mun ég trúlega eitthvað koma inn á bæjarmálin ef ég tel ástæðu vera til og tjá mig um lífið hér í Víkinni eftir þörfum.
Einarshúsið
Kjallarinn er krá með sjómannaívafi. Þar hanga á veggjum skipsstýri og luktir auk ýmissa muna sem tengjast sjómennsku. Stórt stýri úr skútu sem strandaði á Mýrunum skipar þar stóran sess en talið er að þetta sé stýrið úr Pourquoi pas? og held ég þeirri sögu með stolti á lofti. Kompásar og átttantur, bjarghringir og skipsskrúfur sóma sér vel í Kjallaranum meðal annarra merkis muna en þessir hlutir eru stór þáttur í því að skapa þá stemningu sem þar ríkir á góðum stundum. Ylurinn frá kamínunni yljar svo gestum staðarins svo um munar og er það sérstaklega notalegt á vetrarkvöldum að sitja við eldinn og njóta loganna frá kamínunni. Reykingar hafa aldrei verið leyfðar í Kjallaranum og hefur það ekki komið að sök, þvert á móti hafa gestir mínir verið ánægðir með þá ófrávíkjanlegu reglu.
Fastir liðir
Ég hef reynt að brydda upp á ýmsum uppákomum til að laða til mín gesti. Nú á föstudagskvöldið 19. janúar, á sjálfan bóndadaginn, hefst spilavistin að nýju á nýju ári og bind ég vonir við að þar verði húsfyllir og rífandi þátttaka. Vegleg verðlaun eru í boði eins og ætíð. Spilað verður í Péturskaffi, sem er á ''efri hæð Kjallarans'' eins og gárungar bæjarins eru farnir að kalla þennan stórglæsilega sal sem nýverið var tekinn í notkun, en þar var ávallt rekin verslun á árum áður.
Kjallarakeppnin er einnig fastur liður á dagskránni og hefur verið haldin mánaðarlega um nokkurt skeið. Hún fer þannig fram að tveir keppendur skipa hvert lið og svara þrjátíu spurningum skriflega og vinnur það lið sem getur svarað flestum spurningum rétt til veglegra verðlauna. Þessi keppni hefur verið vel sótt og hafa fjölmargir verið spyrlar, allt frá bæjarstjóranum hér í Bolungarvík upp í saklausa sveitadrengi frá Ögri. Ómar Már Jónsson sveitastjóri Súðavíkurhrepps verður næsti spyrill. Sigurvegarar síðustu keppni voru Kristinn H. Gunnarsson og Ingibjörg Vagnsdóttir. Ég fjalla um Kjallarakeppnina nánar þegar nær dregur.
Sagnakvöld hefur verið haldið einu sinni og hef ég mikinn áhuga á að halda það aftur og gera það að föstum lið í dagskrá Kjallarans. Hef ég lagt drög að því að fá margrómaða Drangabræður til að segja sögur bæði af sjálfum sér og öðrum. Þeir bræður eru miklir sagnamenn og segja frá af mikilli snilld og kunna svo sannarlega að segja krassandi sögur, sem án efa eru allar dagsannar. Þeim er mikið í mun að fá að segja sögur af draugum og forynjum þegar þeir koma vestur . Ég hlakka mikið til að fá að taka á móti þeim Guðjóni og Sveini frá Dröngum. Finnbogi Bernódusson var síðasti sagnameistari Kjallarans og menn vita að hjá honum koma menn ekki að tómum kofanum þegar sögur eru annars vegar.
Almennt um mig
Annars fór ég á bæjarráðsfund í morgun eftir langt hlé. Ekki voru mörg mál á dagskrá. Rætt var m.a. um væntanlegt íbúaþing sem halda á 10. febrúar nk. og ber yfirskriftina, það er rok,rok ég ræ ekki, hvað geri ég þá! Ég er í stýrihópi sem skipuleggur þetta íbúaþing og fer ég á fund á morgun því tengdu.
Að öðru leiti var dagurinn nokkuð góður. Vann örlítið í bókhaldinu mínu á skrifstofu endurskoðanda míns. Vinnan þar fer þó stundum fyrir ofan garð og neðan hjá mér því á milli starfsmanna fljúga oft ansi smellnar gamansögur um hin ýmsu málefni sem kitla hlátutaugarnar svo um munar. Ég fíla mig vel þar. Gott að vinna á stað þar sem andinn er góður.
Fór í ræktina með bóndanum seinnipartinn og míkti mig svo upp í heita pottinum. Það er allra meina bót. Ætlaði síðan á AA fund inn á Ísafjörð í kvöld en varð að snúa við vegna stórs snjóflóðs á Óshlíð rétt utan við krossinn. Ég hef aldrei séð svona stórt snjóflóð og það fór aðeins um mig ónotatilfinning og mér var hugsað til Bjarka og Skarphéðins sem fórust á þessum stað fyrir 18 árum. Man það eins og gerst hefði í gær. Mikið verður gott að fá jarðgöng.
Ekki grunaði mig að ég hefði frá svona miklu að segja svona fyrsta kastið. Trúlega nennir enginn að lesa þessa endaleysu og það er bara í lagi. Vonandi kemur andinn yfir mig aftur á morgun. Hafið það gott að góða nótt.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Til hamingju með bloggið,, gaman að þessu, sit þig í favorit-ið
kveðja Halla Signý
Halla Signý (IP-tala skráð) 17.1.2007 kl. 08:13
Halló Víkurmær og verti,
til hamingju með þetta blogg, ég hlakka mikið til að geta fylgst með ykkur þarna í "útlöndum" , Þá getum við hérna í "menningunni" í Dæli citý séð hvað þið hafið fyrir stafni og hvernig gengur. Reyndar höfum við verið " ofsótt "af Bolvíkingum í vetur, eitt sinn er mér var litið framm í borðstofu, sátu ekki færri en 4 Bolvíkingar þar, Torfi, Rögnvaldur, Kristján og Haddi Biggi. .
En í alvöru talaða þetta er flott hjá þér, til hamingju, við fylgjumst spennt með,
íbúar Dæli citý ehf. Group.
Sigrún og co (IP-tala skráð) 17.1.2007 kl. 10:40
zxc
Lilja Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2007 kl. 12:32
Hæjj Mamma,,

Rosalega skemmtilegt blogg hjá þér,
Gangi þér sem allra best(L)
Lilja/yndilslega dóttir þín/
Lilja (IP-tala skráð) 17.1.2007 kl. 12:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.