14.3.2010 | 00:05
Bræður og systur fjalla og fjöru
Vertinn brá undir sig betri fætinum og fór í þorpið við fjörðinn þar sem hafið eða fjöllin laða menn að eða var það kannski bara fólkið ? Það voru hinir einstöku Fjallabræður sem fengu títtnefnda til að leggja land undir fót. Þeir buðu upp á einstaka tónleika í íþróttahúsinu á Flateyri og skemmst er frá því að segja að ómur þessara söngelsku sona fjallanna og fjörunnar hér vestra var magnþrunginn. Stundinni mátti líkja við það að frelsast á samkomu hjá Fíladelfíu og hitta skaparann fyrir á förnum vegi og Vertinn varð fyrir þvílíkum hughrifum að það hálfa væri heill hellingur. Gjörsamlega keyrði um þverbak er Bolvíkingurinn Hjörtur Traustason söng Freyju, lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar og gerði að sínu. Það var einstök upplifun og hann algjörlega sýndi það og sannaði að hann er einn af Íslands vænstu sonum. Glöggt mátti sjá hve sjávarþorpið fyrir vestan hafði fóstrað hann vel og umvafið fjöllum sínum og gert úr honum fjölhæfan og frambærilegan einstakling.
Dagurinn einkenndist af bræðrum og systrum fjalla og fjöru hér vestra því Elísabet systir þessa einkar lagvissa fjallabróðurs söng í Einarshúsi ásamt Bjarna bróðursonar títtnefndrar en þau unnu söngvakeppni framhaldsskólans á Ísafirði. Á Vertinn þá tvo fulltrúa í aðalkeppninni því Bryndís bróðurdóttir vann keppnina á Laugum svo þau systkinin etja kappi á Akureyri innan tíðar.
Benni Sig. var svo valinn íþróttamaður ársins en gaman er að geta þess að hann er einkar lagviss og hefur gott tóneyra líkt og Fjallabróðirinn sem söng svo fallega um Freyju á tónleikunum. Báðir þessir bræður fjalla og fjöru troða upp í Einarshúsi um páskana og þá verður fjör og þá verður gaman enda heiður að fá þá báða á stóra sviðið ásamt öllum hinum sem koma um páskana.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.