2.3.2010 | 21:50
Karlakvöld í Einarshúsi 20. mars
Það er enginn annar en matreiðslusnillingurinn og Vertinn í Tjöruhúsinu, Maggi Hauks, sem verður gestakokkur á Karlakvöldi í Einarshúsi þann 20. mars nk. Gómsætt sjávarréttahlaðborð dýrindisrétta mun verða í boði og nokkuð ljóst má telja að enginn verði svikinn af trakteringunum enda er Maggi þekktur fyrir eðaleldamennsku og sérlega bragðgóðan mat. Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar mun halda utan um veislustjórn en hann er sagður stórskemmtilegur á köflum og kann fádæmin öll af bröndurum og skemmtilegum sögum um mann og annan sem hann segir ugglaust um kvöldið.
Þetta karlakvöld kemur að einhverju leiti í stað hins hefðbundna Kútmagakvölds Lionsmanna sem hefð hefur verið fyrir að halda en verður ekki í ár. Kútmaga má eflaust sjá á sjávarréttahlaðborðinu en þeir verða þó ekki í aðalhlutverki heldur bara svona með í bland. Öllum körlum sem náð hafa tilskyldum aldri til skemmtana er því frjálst að panta borð og festa sér sæti enda má ætla að margir hugsi sér gott til glóðarinnar og mæti til að lyfta sér upp með öðrum körlum. Karlar úr nágrannabyggðarlögum er frjálst að mæta og þá mega þeir vera bæði stórir og litlir, feitir og mjóir og bara allavega. Skilyrðið er að það sé einlægur ásetningur að hafa gaman.
Ekki er lagt upp með það að hafa einhverja lifandi tónlist á stóra sviðinu á eftir enda verður svo brjálað stuðið um páskana að það hálfa væri heill hellingur og fjölmargir beðið um að fá að spila og syngja. Ef einhver hefur þó áhuga á að mæta og taka lagið eftir karlakvöldið skal Vertinn ígrunda það rækilega.
Hverjum manni verður þó að vera það ljóst að panta þarf borð og betra fyrr en seinna og eru menn hvattir til að láta af þeim ósið að panta korteri áður en herlegheitin eiga að byrja. Og til upplýsinga má geta þess að þegar er byrjað að taka við pöntunum.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.