1.3.2010 | 01:34
Viðburðarríkt
Lífið hjá Vertinum var viðburðarríkt þessa helgina eins og svo oft áður. Hlutverkin eru mörg og störfin margbreytileg að vanda enda getur títtnefnd brugðið sér í flestra kvikinda líki ef svo ber undir. Veitingamaðurinn er þó ávallt settur í fyrsta sætið enda er það aðalstarfið sem þarf að sinna með natni. Stór hópur manna á leiðsögumannanámseiði drakk í sig sögu hússins í hádeginu á laugardaginn og fékk einkar góða frásögn yfir einni bestu sjávarréttasúpu sem um getur og gaman var að sjá hve menn voru áhugasamir um söguna. Varla var sagan á enda er ávarp þurfti að flytja á afmælishófi Heilsubæjarins í Bolungarvík sem fagnaði 10 ára afmæli og varla vannst tími til að skipta um hlutverk en það tókst eins og til var ætlar enda fetar Vertinn í Víkinni þokkalega í fótspor forseta bæjarstjórnar þegar þannig viðrar og er nokkuð snögg að skipta um ham ef á þarf að halda.
Myndavélin var svo ekki langt undan því taka þurfti myndir á árshátíð eldri borgara bæjarins og þar var smellt af í gríð og erg og ljósmyndirnar hafa nú litið dagsins ljós á vefnum. Stúlknahljómsveitin Vestan-8 tók lagið og gerði það snilldarvel en ukulele-Lilja er þar undir, yfir og allt um kring ásamt fleiri ungum og efnilegum tónlistarstelpum í Víkinni. Stelpurnar syngja og spila á hin ýmsu hljóðfæri og ber þar að nefna harmonikku, fiðlu og hið stórskemmtilega hljóðfæri ukulele sem hefur heillað Lilju svo um munar.
Fámennt en góðmennt var í Kjallaranum fram á morgna bæði föstudags og laugardagskvöld en samt sem áður var dansað á nýja dansgólfinu eins og enginn væri morgundagurinn og títtnefnd hafði í nógu að snúast við að dansa við mann og annan. Þar fer saman vinna og ánægja því Vertinum finnst sérstaklega gaman að dansa og gerir það óspart sé þess nokkur kostur. Einn gestanna fór bæði í spígat og splitt og sýndi sérlega fimi sína á gólfinu bæði kvöldin. Spilagaldrar voru vinsælir og færeyskan ómaði um salinn og sungið var í migrafóninn af innlifun þótt hann væri hvorki tengdur né í sambandi undir óstöðugum takti trommuleikarans úr hópi gestanna. Stórgott partý bæði kvöldin og langt fram á nótt sem gerir það að verkum að Vertinn þarf smá tíma til að koma reglu á svefninn og ná fyrri þreki fyrir höfuðborgina sem blásið hefur í herlúðra og boðið títtnefndir í heimsókn um næstu helgi.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.