21.2.2010 | 17:48
Líf og fjör við stýrið
Það væri synd að segja að ekki væri búið að vera líf og fjör í húsi sorgar og gleði undanfarið því það er vægast sagt búið að vera brjálað. Herlegheitin byrjuðu á öskudagsveislu á öskudag er læknishjónin létu pússa sig saman með pompi og prakt með stórgóðu teiti í Einarshúsi. Allir voru klæddir grímubúningum og einkar skemmtilegt var að sjá hópinn sem þar var samankominn til að fagna. Að sjálfsögðu þótti við hæfi að smella myndum þeim nýgiftu við stýrið af Pourquoi pas? sem prýðir Kjallarann en nú þykir það varla maður með mönnum ef hann hefur ekki stillt sér upp við stýrið til myndatöku og keppst er við að ná að festa sem flesta þar á filmu.
Lengi hefur verið reynt að lokka og laða Halldór Smárason á stóra sviðið í Kjallaranum og það tókst að endingu og sú stund rann upp á föstudagskvöldið. Strákurinn er ekkert nema frábær og reyndar allir þeir sem stigu með honum á stokk þetta kvöld sem voru fjölmargir. Vertinn væntir þess að þessir strákar taki lagið aftur á góðri stundu. Gestir frá nærliggjandi byggðarlögum eru orðnir mjög duglegir að sækja húsið heim og heyra má að Kjallarinn sé heitasti staðurinn á Vestfjörðum og þótt víðar væri leitað. Það er orðið nokkuð ljóst að stækka þarf stóra sviðið í Kjallaranum því hljómsveitirnar far ört stækkandi og verða umfangsmeiri með degi hverjum. Búið er að hagræða aðeins í salnum og færa til stóla og borð og prýðis dansgólf hefur myndast þar sem hægt er að dansa frá sér allt vit eða því sem næst og eikarviður verður lagður á gólfið innan tíðar. Það má því hverjum manni vera ljóst að hægt verður að dansa þegar þannig viðrar.
Hljómsveitin Haltur leiðir blindan sló enn og aftur í gegn á laugardagskvöldið á þrumudansleik en þar spilaði með ungur og mjög efnilegur piltur á gítar eða bróðursonur títtnefndrar, Bjarni Kristinn, svo snilldarvel að það tók varla tali. Hann tók sóló eins og hann hefði aldrei gert annað með bandinu og fékk að launum mynd af sér við stýrið og aðdáun gestanna. Hann fær vonandi að láta ljós sitt skína í framtíðinni en til gamans má geta þess að aldursmunurinn í bandinu var 41 ár á milli yngsta og elsta hljóðfæraleikarans, samt átti enginn í erfiðleikum með að spila í takt. Haltur leiðir blindan mun stíga fljótlega á stokk aftur og síðan aftur og aftur og aftur í náinni framtíð.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.