Fyrsti reiðtúrinn

Þá er fyrsti reiðtúr ársins að baki og þó að hann hafi verið stuttur í upphafi varð Vertinn frjáls þegar farið var fetið í fyrsta sinn í langan tíma. Ekki svo að skilja að títtnefnd sé í einhverri ánauð, síður en svo en tilfinningin að sitja á góðum hesti sem ber knapa sinn öruggum skrefum í fallegu veðri í enn fallegra umhverfi lætur einhverja sælutilfinningu líða um hugann og tilfinning er líkust því að vera fugl á flugi. Nú skal stefnt að því fara að fara að fara oftar á bak en áður hefur viðgengist undanfarið.

Ætla má að suðurlandið fái að njóta samvistanna við títtnefnda er líður að helginni og hver veit nema stoppað verið einn til tvo sólarhringa svona rétt til að sýna lit. Börnin draga títtnefnda til sín og ekkert tiltökumál er því að renna suður í stuttan stans til að sjá hvort þau braggist ekki vel í borg óttans. Sonurinn klárar bóklegt atvinnuflugmannsnám á föstudag og dóttirin undirbýr sig fyrir fyrsta vinnudaginn hjá alheimsfegurðardrottningunni í Baðhúsinu og unglingurinn fer í námsferð suður svo Vertinn, sem er í senn móðir allra þessara barna, má því til með að standa á hliðarlínunni og fylgjast með.

Hver veit nema frænkan verði kvödd hinstu kveðju í leiðinni og henni fylgdur síðasti spottinn en það er víst gangur lífsins að ljósin lýsa mislengi og því fer sem fer. Eitt sinn léku saman þessar frænkur er þær voru litlar og áttu samleið um tíma enda náskyldar og systkinabörn í ofanálag. Lífið bauð ekki upp á nánari kynni þó minningin væri ljóslifandi um samverustundirnar í æsku og bréfaskriftir á bréfsefnið sem keypt var í Bjarnabúð. Nú hefur stundaglasið hennar tæmst og tíminn er úti en lífið heldur þó áfram og ljúft er að njóta hverrar stundar sem hefur að geyma leyndardóma framtíðar og minningar fortíðar í farteskinu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband