Gjaldmiðillinn laskaður

Göngutúrinn var arkaður að vanda í blíðunni og ferskur andvarinn fyllti lungun af hreinasta lofti veraldar. Skógræktin og Stigahlíðin tóku fagnandi á móti göngugörpunum og sótt var á brattann upp Hólinn. Hundurinn Dollar elti spýtuna og ærslaðist í grasinu enda er göngutúrinn með húsbændunum besti tími dagsins og þar nýtur hann sín í náttúrunni og orkan er endalaus. Ámátlegt vein heyrðist þó sem glumdi um fjallanna hring er spýtan reif tungurótina svo illa að töluverður skaði varð. Dýralæknirinn leit á djúpt sárið og gefa þurfti sprautu og lyf til að lina þjáningarnar hjá þessum einkar ljúfa hundi sem er núna eins og lítið barn sem þarf huggun og klapp og endalausar strokur. Hann liggur nú rólegur inn í hellinum sínum undir stiganum og bíður þess að Vertinn og húsbóndinn vakni og fari með hann hringinn í morgunsárið og leyfi honum að hlaupa um alla móa og mela. Vonandi verður morgundagurinn góður hjá honum eins og okkur hinum og sárið farið að gróa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband