Útskrifuð

Haldiðið ekki bara að Vertinn hafi verið útskrifuð að spítalanum fyrir fullt og fast í dag. Títtnefnd fékk sem sagt spark í rassinn á krabbameinsdeildinni og sagt að hypja sig heim.

Ég varð eiginlega svo hissa að ég vissi ekkert í hvorn fótinn ég ætti að stíga, þetta kom mér svo á óvart því ég hef haldið svo lengi að ég væri á leiðinni heim og bjóst ekkert frekar við því núna. Mig langaði að kyssa mann og annan á deildinni en ég lét það kjurt liggja og valhoppaði út með bros sem náði næstum eyrnanna á milli. Ég mætti Jóni í dyrunum á leiðinni út og hann snerist á hæl í kringum mig og gat ekki annað en fylgt mér fast á eftir er ég rauk út í guðsgræna náttúruna eins og frjáls fuglinn. Það vantaði reyndar að hann yrði útskrifaður af deildinni líkt og ég, því hann hefur tekið fullan þátt í meðferðinni í allan vetur og hefur stutt mig algjörlega í gegnum þessi veikindi mín.

Nú er þetta búið og sex frekar strembnir mánuðir að baki. Samt man ég ekki eftir erfiðu stundunum lengur því það er nánast fennt yfir þær og allt slæmt hefur fallið í gleymsku sem er svo sannarlega gott. Nýir og spennandi tímar eru framundan og til svo margs að hlakka.

Verst er að tengdamamma er búin að spilla mér svo og ég er búin að hafa það svo gott í hreiðrinu hennar að það hálfa væri nóg. Nú þarf ég að fara að gera allt sjálf þegar ég kem heim og það verða viðbrigði. Það mun þó allt komast í eðlilegt horf með tímanum.

Ég mun því koma heim á miðvikudaginn eins og vorfuglarnir enda ekki seinna vænna.


Bloggfærslur 30. apríl 2012

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband