Gleðiefni

Ekki var jafnvægi komið á blóðflögurnar í dag en samt lítur út fyrir að þetta sé allt í áttina. Ég varð því að fá blóðflögur og beinþéttilyf auk þess þarf ég að fá eina sprautu í belginn í dag til að hvítu blóðkornin fari aftur í réttan farveg. Guðmundur læknir viðurkenndi það fúslega að þetta gengi hægt en örugglega samt og þetta væri ekkert óeðlilegt, margir væru enn lengur að ná sér á strik. Hann býst þó við að ég nái að rísa upp um helgina og vonast til að ég fái að fara heim í næstu viku eða fyrir afmælið mitt þann fyrsta sem er reglulegt gleðiefni.

Ég laug því náttúrulega eins og ég var löng til að  ég væri með afmælisfagnað í félagsheimilinu og  yrði að vera alkomin heim fyrir þann tíma. Ég yrði að halda upp á 18 ára afmælið mitt einn ganginn enn og bæjarbúar biðu þess með óþreyju að komast í þau veisluhöld. Held hann hafi ekki trúað einu orði enda orðin vanur bullinu í mér og sendir mig ekkert heim fyrr en allt er í orden.


Bloggfærslur 26. apríl 2012

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband