Lítið

Afskaplega lítið er að frétta frá mínum herbúðum þessa stundina enda lítið að gerast. Ennþá þarf ég á blóðflögum að halda og á að fara í næstu blóðprufu á morgun og þá kemur í ljós hvort ég sé farin að ná einhverjum ballans. Ég geri mér vonir um að komast heim í þessari viku en það er auðvitað undir hælinn lagt hvort það tekst. Þetta er víst allt eðlilegt og lítið annað en að taka þessu bara eins og það kemur fyrir af skepnunni.

Þróttleysið er alveg ótrúlegt en því var lofað svo ég þarf ekkert að kvarta og kveina en það gæti tekið þrjá til sex mánuði fyrir mig að ná þreki á ný. Þá kemur fjallaloftið fyrir vestan að góðum notum og mun án efa spila stóran þátt í því að koma mér á réttan kjöl á ný.

Ég mun vonandi standa mig ágætlega í því að veita fyrirskipanir í Einarshúsinu í sumar en Jón Bjarni kemur í minn stað þetta sumarið þvi ég verð meira svona á hliðarlínunni. Það mun allt ganga vel enda verð ég með fyrirmyndarmannskap í vinnu að venju.

 


Bloggfærslur 15. apríl 2012

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband