29.3.2012 | 15:28
Lofi nú heilagir
Lofi nú allir heilagir upprisu Verstins í Víkinni.
Loksins er heilsan að skána og líðanin að verða betri og langþráðir dagar að líta dagsins ljós. Hvítublóðkornin komin í 0,5 en þau eru búin að vera á núlli í viku. Hidrófílarnir sem eru aðalviðgerðarmenn hvítublóðkornanna eru komnir í 0,3 sem er þess valdandi að þessar nauðsynlegu herdeildir hafa farið beint þar sem ég er veikust fyrir til að laga og bæta.
Get ekki sagt að þetta hafa verið auðveldur biti í háls, enda var hálsinn að drepa mig allan tímann og vélindað svo ekkert annað var á matseðlinum en súpur, bildöppdrykkir og jógúrt. Hitinn auðvitað hreiðraði um sig í tvo sólarhringa og það var tekið á því með viðeigandi hætti. Systkinin, gullfoss og geysir, komu við líka og settust upp mestan part tímas svo glöggt má sjá að ég hef haft fullt í fangi með þetta allt saman
Svo var það sko málið að vera ein í herbergi og fá hvorki að fara fram á gang eða út um gluggann. Það gat orðið svolítið kárt gamanið þegar engin var nema ég til að nöldra við. Ég hugsa að ég hefði orðið nokkuð geggjuð á endanum ef þetta ástand hefði varað mikið lengur. Annars þá komst ég að því að ég get líka verið bráðskemmtileg þess á milli og geiflað mig og grett ef svo bar undir, bara ein og með sjálfri mér. Svo gat ég auðvitað gengið um herbergið með Hólmgeiri heiðursmanni en hann er svokallað burðardýr þeirra efna sem ég þurfti stöðugt að fá í æð á tímabilinu.
Jón Bjarni sat auðvitað við hlið mér meira og minna allan daginn svo ekki þarf ég mikið að kvarta og krakkarnir mínir komu oft í heimsókn svo ég var alveg sátt. Auður systir kom einnig í gær og gantast var með það að það var hvergi eins mikill gestagangur og hjá þeirri sem var í varnareinangruninni en það var bara í fínu lagi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 29. mars 2012
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm