Einkasvíta

Þá er ég komin á einkasvítuna mína á Lansanum og það fer alveg ótrúlega vel um mig. Hér er ég búin að vera síðan á fimmtudagskvöldið en þá var ég hætt að geta haldið niðri mat og var kastandi upp í tíma og ótíma sem er auðvitað ekki nógu gott fyrir kerlingar í minni stöðu. Núna er búið að ballensera allt slíkt með velgjuvarnalyfjum beint í æð svo uppköstin hafa minnkað til muna. Hálsinn og vélindað er einnig verkjastyllt með morfínlyfjum eftir þörfum og því næ ég að borða svona flest allt.

Hvítu blóðkornin eru auðvitað komin niður á núllið og þar hanga þau þar til ég fer að rísa upp á ný líkt og frelsarinn sjálfur hér forðum. Ætli ég muni ekki tala um þennan tíma sem" fyrir og eftir upprisu" og vænta þess að tímatalið breytist í samræmi við það hjá öllum siðuðum þjóðum.

Blöðflögur fæ ég í dag og blóðgjöf á morgun og næstu daga til að jafnvægi haldist í líkamsbúskapnum. Ég er ekki komin með hita sem segir það að hvergi er sýking í skrokknum og fyrir það má ég vera ánægð. Annars þá er tekin einn dagur í einu því fleiri góðir dagar því betra.


Bloggfærslur 24. mars 2012

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband