5.2.2012 | 12:15
Í fyllingu tímans
Ekki þýðir að gráta Björn bónda þó einhver smá harðindi séu boðuð handan hornsins. Maður verður bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði. Ég held að hárið sé farið að losna enn frekar frá hársverðinum af einskærum pirringi yfir þessu öllu saman og það verður svo að vera, ég er svosem búin að búast við því svo lengi að toppstykkið yrði berangurslegt að það er í orden.
Ég gleymdi reyndar að geta þess þegar ég var að segja ykkur frá klúðrinu við stofnfrumumeðferðina að þær reyndu að troða í mig morgunverði í tvígang á spítalanum þarna um morguninn þótt ég væri fastandi svo það virtist engin vita hvað í ósköpunum ég var að gera þarna yfirleitt, svo ekki sé nú talað um þegar umbúðirnar voru teknar eftir legginn á hálsinum, þá var það gert með þvilíku trukki að bringan á mér var eitt flakandi sár eftir plásturinn. Það mætti halda að ég hefði verið lögð inn á bílaverkstæði en ekki sjúkrahús
Það þýðir auðvitað ekkert að nöldra meira yfir þessu. Ég mun verða vel vakandi yfir því að menn vinni vinnuna sína hér eftir og get ekki annað en vonað að sjúkrahúsið yfirfari þessi mál og sjái til þess að þetta gerist aldrei aftur.
Annars þá er ég auðvitað hin hressasta þar fyrir utan, eða þannig. Svoldið þreytt auðvitað og úthaldsminni en ella en geri allt sem mig langar eða flest allt. Stefnan er tekin vestur í heimsókn innan fárra daga og það verður nú aldeilis fínt að komast heim.
Við hjónin fórum í kaffiboð hjá fyrsta bassa sinfóníunnar og hans frú í gær en Hávi og Jón eru gamlir vinir og hljómsveitargæjar frá í denn. Ég var nú að gæla við það að þeir kæmu saman og spiluðu saman á Þorskinum en ekki ómerkari maður en Kristján Edelstein var með þeim í bandinu Sexý ásamt fleirum. Við skulum sjá hvort mér tekst að koma þeim saman í fyllingu tímans.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 5. febrúar 2012
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm