Einn sextíu og sex

Vertinn vaknaði í tíma til að fara til prófessors í tannlækningum í Tanngarðinum svokallaða til að láta kíkja á skoltinn. Eitthvað þarf að hreinsa og taka til áður en stofnfrumuaðgerðin sjálf fer fram svo ekki myndist sýkingar í slímhúðinni. Ég þarf víst að fara til tannlæknis í þessu kærkomna fríi til að láta laga eitt og annað. Ætli ég komist nokkuð vestur vegna þessa.

Lungnaprófið tókst með ágætum svo lungun virðast í góðu standi ef miðað er við hæð og aldur. Það kom þó verulega á óvart að ég skyldi vera að dragast saman því alltíeinu núna virðist ég hafa minnkað um heila tvo sentímetra á stuttum tíma. Ég þrætti við vesalings stúlkuna og heimtaði að ég yrði mæld upp á nýtt en það var ekki um villst, ég var orðin einn sextíu og sex ( sko á hæð) eða bara hálfgerður dvergur miðað við það sem ég var þegar ég var stærst í bekknum á sínum tíma en þá var ég 168,5 cm. Bráðum verður hægt að mæla mig í fermetrum ef fram fer sem horfir. Kannski hafa beinin ekki vaxið ennþá eftir beinþynninguna svo ég geri mér vonir um að ég spretti kannski eitthvað. Ég verð þá bara að sætta mig við að vera eins og lítil kúla í laginu. Ég er þó nokkuð ánægð með aukakílóin núna því ég held ég þurfi á þeim á halda í átökunum stóru.


Frí

Leggurinn rann léttilega úr í morgunsárið enda er Harpa hjúkka einkar klár og kann til verka. Það var pís og keik. Í framhaldinu kom í ljós og ég var frekar blóðlaus og fékk að dúsa oná spítala til kl fögur til að fá blóð en tveir pokar runnu glatt í æðar Vertsins. Kannski hefur blóðið komið úr fyrrum sýslumanni Ísfirðinga sem nýverið fékk viðurkenningu fyrir endalausar blóðgjafir, því mér fannst ég svo valdsmannsleg á eftir.

Ég var frekar lág í kalkinu líka svo ég bryð kalk í gríð og erg. Er með verki í fótunum trúlega þess vegna en það mun lagast.

Tannlæknir og lungnapróf eru í fyrramálið en svo hef ég frí til 13 mars og mun það væntanlega verða gott frí.

Þá ætla ég að lífsins í botn.


Bloggfærslur 29. febrúar 2012

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband