Tímamótaviðtal

Enn og aftur þykir við hæfi að birta viðtal við Vertinn í Víkinni sem útvarpað var í morgun á rás eitt. Fregnir herma að keyra hafi þurft á ljósavélum í bland við raforku landsvirkjunnar og OV vegna þess aukna álags sem myndaðist þegar þessu merka spjalli var varpað í loftið. Gufunesradío var í mesta basli með að höndla álagið en gat þó með herkjum sent út til skipa og báta á Íslandsmiðum. Þeir sem ekki höfðu tök á að hlusta á þetta merka tímamótaviðtal geta heyrt það hér.

Ný myndasería

Brugðið á leikBúið er að raða samviskulega nýjum myndum frá árshátíð Einarshúss um helgina inn í myndaalbúm. Með auðveldum hætti er hægt að skoða þær gaumgæfilega hér á síðunni í myndaalbúmi hér til hliðar. Tekið skal þó sérstaklega fram að sumar myndirnar eru ekki fyrir viðkvæma og hjartveikt fólk er beðið um að hafa eitthvað hjartastyrkjandi við höndina ef bera fer á aðsvifum eða yfirliðum. Veislugestir slógu á létta strengi þetta kvöld og skemmtu sér hið besta fram á rauða nóttina og segja má með sanni að maður hafi verið manns gaman. Brúka þurfti allskyns fatnað héðan og þaðan, auk þess sem aukahlutir voru notaðir til að krydda skemmtiatriðin svo um munaði og féll það vel í kramið. Þorsteinn Haukur umboðsmaður Vífilfells hér vestra mundaði myndavélina af mikilli fimi og tók myndirnar.  


Í Einarshúsi

Í Einarshúsi er oftast hlýtt.

Við eldinn þar raddir óma

enda er húsið orðið sem nýtt

og eigendum þess til sóma.

 

Höf: Finnbogi Bernódusson

 


Bloggfærslur 14. nóvember 2007

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband