Ekki seinna vænna

Einar Jón og Kristján KarlÞað er auðvitað ekki seinna vænna að geta þess hverjir unnu Singstar keppnina sem haldin var sl. helgi. Það má segja með sanni að Vertinn hefði trúlega átt að vera búin fyrir löngu að tilkynna um hinn frækilega sigur kappanna sem sungu sig svo inn í hug og hjörtu allra sem saman voru komnir í Kjallaranum að hið hálfa væri hellingur. Það tilkynnist því hér með gleði að tilvonandi tengdasonur títtnefndrar og Íslands eina von, Einar Jón Snorrason og hljómborðsleikarinn í hljómsveitinni Haltur leiðir blindan (sem virðist vera að slá í gegn um þessar mundir) Kristján Karl Júlíusson, fóru með sigur af hólmi í keppninni um bestu látúnsbarka kvöldsins. Þeir þóttu sýna mikla tónlistar hæfileika á stóra sviðinu og héldu bara þokkalegu lagi. Þeir hrepptu því hnossið eða hnepptu hrossið eftir því hvernig á það er litið  því drukkurinn frá Vífilfelli ranna til þeirra sveina ómengaður. Vænta má að hægt verði að syngja í singstar um páskana ef veður og færð leyfa.

Gummi Hjalta með baunum á sprengidag

Trúbadorinn og kostgangarinn Gummi Hjalta mætir með gítarinn í hádegið á sprengidag og tekur lagið fyrri gesti Einarshúss. Menn eru hvattir til að mæta og fá sér saltkjöt og baunir í bland við söng og glens og eiga notalega stund saman og fagna betri tíð með blóm í haga.

Gummi Hjalta


Krúttmagakvöld 7. mars

Sannkallað krúttmagakvöld verður haldið í Kjallaranum laugardaginn 7. mars nk. Ekkert verður til sparað til að gera kvöldið sem veglegast og margir hafa lagt hönd á plóginn til að það geti orðið sem glæsilegast. Breytt útlit verður á sínum stað þar sem færasta hárgreiðslufólk frá Hárstofunni í Bolungarvík breytir bolvísku fljóði í glæsilegt módel en sú heppna kona sem verður í breyttu útliti mun verða máluð með snyrtivörum frá Volare og klæðast fötum frá tískuvöruversluninni Monroe á Ísafirði. Einnig mun Guðlaug Rós, nýr eigandi Hárstofunnar í Bolungarvík, greiða tískusýningardömum sem sýna föt frá tískuvöruversluninni Monroe á Ísafirði. Gjafir handa þeim sem mæta á krúttmagann eru í boði Volare en Guðlaug Bernódusdóttir er umboðsaðili Volare í Víkinni og jafnframt vinnuhjú í Einarshúsi svo hæg eru heimatökin. Eitthvað sprell og spé verður einnig viðhaft á þessari kvennasamkomu til að létta konum lífið þennan dintinn og lagt er til að hvert borð segi skemmtilega sögu til að lífga upp á samkvæmið. Rúsínan í pylsuendanum verður svo Súsanna sem ætlar að baða sig á stóra sviðiinu þegar líður á kvöldið.

Pastahlaðborð verður í boði á krúttmagakvöldi og verð er 3000 krónur per mann og konur eru hvattar til að skrá sig hið fyrsta og þær sem þegar hafa bókað komu sína eru beðna að staðfesta bókunina


Kátt á kjallarakeppni

P1040615Satt best að segja verður að segja alveg eins og er og með fulle femm að Einarshús iðaði af lífi og fjöri á kjallarakeppninni er Ylfa spurði fólk spjörunum úr. Algjör húsfyllir var í Kjallaranum og gamanið var bilað. Varla var hægt að þverfóta fyrir fólki sem hugðist hreppa hinn görótta drukk frá Vífilfelli sem nokkur akkur þykir í að fá í verðlaun á þessari margfrægu keppni. Hin alræmda bjórspurning fallbeygðist eins í öllum föllum og flestir ef ekki allir fengu kolamola úr kolageymslunni að launum sem gerði bara ekkert til. Benni Sig. koma með gítarinn og hafði með sér látúnsbarka sem heimtaði aukavinnu en hann kunni lög bræðranna Jóns Múla og Árna Árnasona eins og hægra handabakið. Það er enginn önnur er Sr. Agnes M. Sigurðardóttir sóknarprestur sem spyr í keppninni eftir hálfan mánuð og eins gott er að lesa biblíuna og mæta í allar messur fram að þeim tíma og umfram allt fara með faðirvorið fyrir svefninn. Það vita auðvitað flestir að drottinn allsherjar skóp ekki Einarshúsið á áttunda degi svo lítið þýðir að geta sér þess til. Vertinn mundaði myndavélina eins og borgað væri fyrir og nýtt myndasafn birtist nú á síðunni.

Singstar í Kjallaranum á laugardagskvöld

Nú ber svo við um þessar mundir að boðið verður upp á svokallað Singstarkvöld í Kjallaranum á laugardagskvöldið. Meginþemað er Abba og lagt er til að gestir komi í fötum frá því Abba tímabilinu en verðlaun verða veitt fyrir bestu múnderinguna auk þess sem glaðningur er til handa þeim sem fara með sigur af hólmi í keppninni. Allt eins má þó búast við að verðlaunin eigi upptök sín í kolageymslunni alræmdu en þar leynist ýmislegt forvitnilegt. Hrund Karlsdóttir hefur tekið að sér að vera dómari um kvöldið og dæmir ma klæðnað og söng en hún mun ekki dæma neinn til dauða svo óhætt er að mæta þess vegna. Þeir sem aftur á móti "deyja" fram á borðið að sjálfsdáðum fá auðvitað að sofa þar til slagbrandinum verður slegið fyrir um miðja nóttina en þá skulu þeir hinir sömu halda heim á leið. Hrund er hvött til að fá einn til tvo aukadómara í lið með sér til dómgæslunnar svo jafnræðis sé gætt í hvívetna. Lagt er blátt bann við að múta dómurum enda telst slíkt ekki til eftirbreytni af neinu tagi og ófagurt til afspurnar og ef upp kemst um slík svik skal sá hinn sami tapa ærunni og þarf því varla að kemba hærurnar rétt á meðan.

 


Ylfa Mist spyrill í Kjallarakeppni í kvöld

Það er engin önnur en Ylfa Mist sem er spyrill í Kjallarakeppninni í kvöld. Keppnin hefst að vanda klukka 22:30 eða um það leiti og tilboð verða á kolamolum úr gömlu kolageymslunni. Ylfa situr sem fastast á skólabekk og lærir lyfjafræði og aðrar tengdar greinar af miklum móð um þessar mundir og af því má ætla að hún viti allt og ekkert um hvað eina sem amar að bæjarbúum og geti lagt mat á hverskyns sjúkdóma og orsakir þeirra. Þess vegna telur Vertinn tryggara að keppendur lesi bækur og blöð sem fjalla um bakflæði og blöðrubólgur, ristruflanir, ristilspeglanir svo ekki sé minnst á hægðarteppu út í hörgul auk þessa að kynna sér vel gangverk mannslíkamans til að glöggva sig sem best á stöðunni. Trúlega tekur hún blóðþrýstinginn eftir hverja spurningu fyrir sig og án efa á hún eftir að syngja spurningar fyrir gesti milli þess sem hún dreifir sögusögnum um áhrif Viagra á Víkara eða öfugt og þar fram eftir götunum. Verðlaunin eru eins og fyrr segir drukkur í fljótandi formi frá Vífilfelli.

 


Hamingjuóskir

Til Katrínar Guðrúnar Ólympíufara og færustu frænku fjölskyldunnar á skautasvellinu


mbl.is Ólympíufaranum Katrínu Guðrúnu fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn vandi

Vertinn telur tilhlýðilegt að lífga upp á veraldarvefinn og segja smá fréttir svona rétt áður en títtnefnd töltir upp á loftið. Þó verður að segjast alveg eins og er að margnefnd er með sáralitlar fréttir á takteinum þessa stundina enda gengur lífið sinn vanagang. Enginn situr í stofunni auk þeirrar sem þetta ritar nema hundurinn sem lagt hefur augun aftur og hringað sig á stofugólfinu. Loginn logar enn á kertinu eftir rafmagnsleysið í kvöld en allt var kolniðadimmt um stund og dauðþögnin dottaði á glugganum. Rafmagnið virðist vera af skornum skammti hér vestra þegar minnst varir og hefur æði oft bara hreint yfirgefið svæðið af minnsta tilefni og þá er gott að eiga nóg af kertum og góðan kveikjara.

Dagurinn leið í önnum eins og vanalega og hlaupið var úr einu í annað. Kostgangarnir þurftu sinn mat og engar refjar. Einhver hafði þó á orði hvort það væri "stórslys" í boði í hádegismat og kom því til skila milli lína að Guðlaug væri betri kokkur en Vertinn. Það gefur auðvitað auga leið að hún hefði ekki verið valin til starfans ef svo væri ekki. Það skal þó tekið fram að títtnefnd kann að elda ef hún vill svo hafa og kann að laða fram bestu krásir og kynstrin af þeim.

Allskyns pappírar og skjöl bíða svo á endurskoðunarskrifstofunni og þar verður Vertinn að setja sig í hlutverk skrifstofumærar þegar svo ber undir og bóka einhver lifandis býsn. Það rennur ljúft í höndunum á téðum Vert að láta bókhaldið stemma, öfugt við það sem var í eina tíð. Þótt ótrúlegt sé þá var það títtnefndri ofviða að vinna bókhaldsvinnu enda leyfði heilsan ekki slíkt. Það var eitt af því sem alkinn gat ekki gert og komist fram úr að vinna. Stórt fjall pappíra safnaðist upp á borðstofuborðinu og dagsverk hvers dags fyrir sig var að ná því niður en ekkert gekk. Núna tveimur árum seinna er þetta létt verk og skemmtilegt og enn og aftur leitar hugurinn í veganestið sem var hengt á Vertinn fyrir rúmum tveimur árum er lífið var opnað á Vogi og sólin braust í gegn. Þá var sagt að það tæki tvö ár að ná fyrri heilsu og það er heilagur sannleikur. Það sem einu sinni var ekki hægt, er núna enginn vandi. Svo má kannski segja að það sem áður var hægur vandi, er ekki lengur hægt, en það er nú önnur saga.

Þeir tíu dagar sem Vertinn var á Vogi voru eftirminnilegir. Þar eru sjúklingar í náttfötum og sloppum og þar er ekkert sjónvarp né útvarp, tölva né sími og þar má enginn koma í heimsókn. Á tíunda degi var Vertinn farin að þrá að komast út í frelsið og beið með öndina í hálsinum eftir að fá að heyra nafnið sitt kallað upp í læknisviðtal áður en ákveðið væri hvort títtnefnd fengi að fara heim. Téður Vert hefði satt best að segja ekki geta verið degi lengur þarna innilokuð.  Áhyggjur voru meðal þeirra ráðgjafa og lækna sem reyndu að hlúa að velferð Vertsins, yfir því sem hún hefur að aðalstarfi hinu megin við barinn og ráðleggingarnar voru á þá lund að kannski væri best að snúa sér að einhverju öðru. Það kom aldrei annað til en að halda sínu striki og enda hefur það komið á daginn að það er oftast enginn vandi að vera réttu megin við barinn. 

Boðskapur þessa hugleiðinga er sá að það getur verið mikill vandi að lifa lífinu þrátt fyrir það að það sé oft á tíðum enginn vandi þegar á botninn er hvolft....ef þið skiljið hvað ég á við.

 

 


Sveifla

Frændur okkar Færeyingar eru í nokkru uppáhaldi þessa stundina hjá títtnefndri þá sér í lagi fyrir söngvarann Jógvan sem söng lagið sem átti að fara til Moskvu að mati margnefndrar svo undurfallega. Ef melódían nær að heilla þá fær hún að rúlla aftur og aftur þar til lagið síast inn og þá ómar það stjórnlaust í undirmeðvitundinni og gerir hvern mann vitlausan á endanum.

Jógvan gat þó ekki komið með í göngutúrinn sem stiginn var í dag í blíðskaparveðrinu í Víkinni svo hann söng sitt síðasta rétt á meðan. Mikil hálka gerði það þó að verkum að Vertinn kunni varla fótum sínum forráð og mátti hafa sig alla við að húrra ekki á óæðri endann þegar síst skyldi. Skógræktin tók á móti títtnefndri með sveiflu og bogabrúin sem liggur yfir Hólsána nikkaði til göngugarpanna og bauð þeim yfir en um það svæði liggur skemmtilegur göngustígur. Hóllinn tók í að venju en ómurinn frá sálmasöngvunum í Hólskirkju dró ekki úr ferðinni frekar en hitt og Jesú bróðir besti leit út um gluggann rétt á meðan spígsporað var framhjá kirkjunni með velþóknun í ásjónu sinni. Passað var sérstaklega upp á það að blóta ekki né ragna í návist hans enda er það ekki við hæfi og engin ástæða til slíks á fallegum degi út í guðsgrænni náttúrunni.

"I think the world of you" átti daginn í dag enda hertók lagið hugann. Næsta vika bíður handan hornsins með ótal verkefnum svo gott er að geta dillað sér við verkin með Færeyinginn sér við hlið. Vertinn mun standa við eldavélina í forföllum eldabuskunnar sem bregður sér af bæ þessa vikuna og án efa verða naglasúpur og burtflogin hænsni á matseðlinum ásamt teiknuðum kartöflum og ýmsu fleira góðgæti kryddað með sagi og öðru því sem til hefur fallið við smíði hússins gegnum árin. Það mun án efa renna ljúflega niður kverkar og kæta og bæta geð þeirra sem teljast til kostgangara Vertsins í Víkinni. Herlegheitin verða svo matreidd af alúð og ætli sveiflan verði ekki stigin með Jógvan eitthvað fram í vikuna enda tvistum við í vindinum meðan við eigum hvert annað.


Dæmisaga

Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi:  "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga.  Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn:  "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"

Boðskapur sögunnar:

Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband