Rómantískt kvöld með Benna Sig. og Halldóri Smára

Rómantíska kvöldið með Halldóri Smárasyni og Benedikt Sigurðssyni verður haldið í Einarshúsi föstudagskvöldið 19. febrúar. Þá verður himnesk sjávarréttasúpa í boði og heimabakað brauð. Herlegheitin hefjast um kl. 20:00 og standa fram á kvöld. Um miðnættið fara þeir félagar niður á stóra sviðið og leika og syngja fram á nóttina.

Betra er að panta borð í tíma en verðið er 1500,- á mann.


Hljómsveitarferðin í Ýdali

Það tekur aldeilis á að vera fylgifiskur hljómsveitarinnar Haltur leiðir blindan en farið var í Ýdali um helgina til að spila í afmæli og dansleik þar á eftir. Skemmst er frá því að segja að aldrei fyrr höfðu sést föngulegri grúpp-píur en þær sem fylgdu sveitinni norður heiðar á litlu rútunni enda þóttu þeir ein besta hljómsveit sem stigið hafði þar á stokk í langan tíma að sögn heimamanna. Mikið var dansað enda takturinn góður. Unun var að sjá einstaka danskunnáttu unga fólksins þarna fyrir norðan sem kunni sporin upp á tíu og lét sína fimi á dansgólfinu óspart í ljós. Þegar Vertinn fór að spyrjast fyrir um hvernig stæði á þessari sérstöku fimi unga fólksins í Þingeyjarsýslunni í dansinum kom í ljós að danskennsla er í grunnskólanum og því er danskunnáttan sem raun ber vitni. Það er skemmtilegt að geta státað af svona góðu dansfólki. Vert er að geta þess að hljómsveitin Haltur leiðir blindan mun leika fyrir dansi á laugardagskvöldið kemur í Einarshúsi og þá geta allir sem vettlingi geta valdið komið og hlýtt á eina bestu hljómsveit sem stigið hefur á stokk á Norðurlandi í manna minnum.

Títtnefnd er þó alveg búin að vera eftir helgina. Langar og strangar rútuferðir og brjálað dansiballið fram á morgun gerir það að verkum að úthaldið virðist búið í bili og hvíldarinnlögn þætti trúlega heppileg til að auka þol og þrótt. Það mun þó hverjum manni vera ljóst að heilsan verður orðin góð á morgun eftir góðan nætursvefn enda nokkuð mikið að gera fram yfir helgina.


Viðtalið við soninn

Hér kemur viðtalið við hógværa flugdúxinn sem birtist á stöð tvö nýverið bara rétt fyrir þá sem misstu af því.

Tilhlökkun í bland við smá fréttir

Mikil tilhlökkun ríkir hjá Vertinum um þessar mundir enda er ferðinni heitið norður í land á föstudag sem fylgifiskur hljómsveitarinnar "Haltur leiðir blindan" sem er að slá svona heldur betur í gegn. Það er ekki ómerkari staður en Ýdalir sem pantað hafa þessa einstöku og lagvissu tónlistarmenn til að leika og spila í afmæli og svo á stuðballi á eftir og þeir eiga án efa eftir að standa undir nafni. Öll hersingin fer í rútu norður og fá makar þeirra ánægju aðnjótandi að fá að fljóta með enda ómissandi þáttur í tónleikaferð sem þessari og eru svokallaðar "sprittbremsur" á tónleikagæjana svo þeir haldi sig á mottunni og haldi lagi út í nóttina. Þetta er auðvitað alls ekki satt því strákarnir eru til fyrirmyndar hvar svo sem þeir koma og þurfa alls ekki að hafa betri helmingana með nema upp á punt og rétt til að hreykja sér af því hversu vel giftir þeir eru. Vertinn fer í ondúleringu af þessu tilefni til Súðavíkur á morgun eftir að hafa smellt af myndum við merkilegt tilefni í fyrramálið fyrir Víkarann og þá verður allt klárt fyrir Norðurland komandi helgi.

Húsbóndinn dvelur í höfuðborginni en hundurinn Dollar var að taka eitt prófið ennþá og stóðst það með miklum glans enda frábær leitarhundur sem vinnur vel með húsbónda sínum. Þeir voru svo bráðheppnir að hitta afmælisbarn dagsins en unga konan hún Elsa er 21 árs í dag og hélt upp á það í Baðhúsinu hennar Lindu Pé en þar vinnur hún núna með alheimsfegurðardrottningunni fyrrverandi og hefur það fínt. Þórunn tengdadóttir vinnur í sambærilegri vinnu upp í Heilsuakademíunni í Egilshöll svo þær þekkja svona lagað út og inn og líklegt að títtnefndri verði jaskað út í næstu borgarferð. Ekki þarf að hafa margar sögur af frægðarsól Andra einkasonar sem rís hátt um þessar mundir enda stóð hann sig afburða vel í náminu sínu og dúxaði með glans atvinnuflugmannsprófin.

Prímadonnurnar eru því einar heima og hafa það afbragðsgott enda leikur lífið við hvurn sinn fingur og spennandi ævintýri bíða færis við hvert horn. Ukulele Lilja springur út hvern einasta dag og blómstrar gjörsamlega um þessar mundir svo lífið er einkar ljúft og allir virðast í hinum besta gír. 

Þorrablót og rómantísk kvöld bíða færist um þar næstu helgi og Einarshúsið mun iða af lífi og fullt verður af spennandi augnablikum fram að því. Því er vert að njóta líðandi stundar og finna ilminn af lífinu í vindinum og láta stundina líða átakalaust hjá.


Haltur leiðir blindan

Haltur leiðir blindanHljómsveitin Haltur leiðir blindan mun stíga á stóra sviðið í Kjallaranum þann 20. febrúar nk. er klukkan er langt gengin í miðnættið. Þeir munu halda úti taumlausu stuði fram á nótt og spila músik sem tryllir og tætir lýðinn. Þeir stíga á stokk að afloknu þorrablóti sem haldið verður fyrr um kvöldið uppi í sparisalnum svo vænta má þess að mikið líf og mikið fjör verði í húsinu þetta kvöld og nótt. Nú skal hver sem betur getur taka þess helgi frá fyrir herlegheitin sem í boði verða í húsi sorgar og gleði í Bolungarvík og setja sitt mark á menningarlíf staðarins.

Rómantík með Halldóri Smára og Benna Sig.

Halldór Smára

Sannkölluð rómantík mun sveima í Einarshúsi föstudagskvöldið 19. febrúar því  Benni Sig. og Halldór Smára ætla að syngja ljúfa söngva og sveipa andartakið seiðandi og töfrandi ljóma yfir einkar ljúffengri sjávarréttasúpu. Kertaljós og kósýheit verða allsráðandi og kvöldstundin ljúf og góð eða þar til þeir kappar færa sig niður í Kjallarann og koma sér fyrir á stóra sviðinu. Þá skal dansað eins og enginn sé morgundagurinn.

Benni Sig


Lokakvöld í þriggja kvölda keppni

Lokakvöldið verður í þriggja kvölda keppni á föstudagskvöldið 12. febrúar nk. Þá hreppir sá sem hefur fengið flestu stigin eftir þrjú spilakvöld veglegan vinning að launum. Einnig fá þeir sem hafa flestu stigin það kvöld í karla og kvennaflokki vinning sem og þeir sem hafa fæstu stigin.


Kostulega Kjallarakeppnin

Það á nú varla að þurfa að geta þess að kostulega Kjallarakeppnin verður haldin á í kvöld, föstudagskvöld. Spyrlar eru þeir Ragnar Högni Guðmundsson og Hlynur Reynisson en hann vinnur á Náttúrurstofunni. Vænta má þess að keppnin verði hörð og spennandi og eru bráðgáfaðir beðnir um að setja sig í stellingar. Ef Mæja Bet og Sigurbjörg Hallgríms mæta má búast við geysilegri keppni milli þeirra keppenda sem hafa eitthvað vit í kollinum og spennandi verður að sjá hverjir bera sigur úr býtum. Kolamolinn verður á kostakjörum að vanda á þessum kvöldum og brýnt er fyrir hvern þann sem telur sig eiga erindi að mæta í tíma.

Heimkoman

Sérstæð sakamál Sherlock Holmes voru ráðin í bíóhúsum borgarinnar og þar með varð gátan leyst og hægt var að halda heim á leið eftir góða daga í höfuðborginni. Fjöllin höfðu vakað meðan Vertinn var fjarverandi og haldið verndarhendi yfir byggðum á vesturslóð. Tunglskinið sveipaði firðina í Ísafjarðardjúpi sérkennilegri birtu kvöldhúmsins og fuglinn í fjörunni hallaði undir flatt er títtnefnd ók á löglegum hraða á beinum og breiðum veginum á leiðinni heim. Aðdráttarafl náttúrunnar var allsráðandi og það var gott að koma heim í faðm æskustöðvanna og finna ilminn af hreina og tæra sjávarloftinu. Börnin voru öll skilin eftir í höfuðborginni og því er rólegt í kotinu um þessar mundir en verkefnin ærin og gott að hafa nóg fyrir stafni. Með hækkandi sól aukast umsvifin í húsi sorgar og gleði enda brýnt að halda á í dagsins önn og láta hvergi deigan síga.

Helgin

Helgin er búin að vera afar viðburðarrík hjá Vertinum á meðan á dvölinni stendur í höfuðborginni og hver mínúta skipulögð fram í fingurgóma. Bjart var yfir Kringlunni þó sólin hafi ekki náð þangað inn af neinu viti glampaði hún þó á okurverðmiðann á hverri flíkinni á fætur annarri. Fékk títtnefnd nett sjokk og yfir höfuðið er tugþúsunda kjólar og pils fallbuðu sig á allt öðru en spottprís á orkupöllum reykvískra glamur og glansbúða. Pyngjan var með léttara móti svo haldið var í við krónuna og passað upp á aurinn enda kreppa í landinu og betra að fara sparlega með og leggja fyrir til mögru áranna.

Snæfellsjökull bar við himinn í fjarska við Útskálakirkju en þaðan var frænkan borin til grafar í gær og þangað lét Vertinn sig berast með hópnum. Frænkan fékk að lifa alltof stutt en það er nú einu sinni svo að við förum ekki endilega í þeirri röð sem við komum og ljós okkar lýsir mislengi. Í jarðaförinni hitti títtnefnd skyldfólk sitt sem hún hefur jafnvel ekki séð í áratugi og það var gleðilegt en jafnframt sorglegt en svona skiptis lífið á sorgum og gleði í bland.

Fréttaritarinn á Víkara mátti svo til með að láta sjá sig á balli þorrablótsfélagsins sem haldið var í gær. Það er einkar góður kostur að geta skýlt sér á bak við myndavélina fyrst það er ekki lengur val að glápa úr sér glyrnurnar gegnum flöskubotninn og því voru teknar myndir af blótsgestum í gríð og erg sem birtar verða á vefnum í fyllingu tímans. Dansað var eins og enginn væri morgundagurinn og það var reglulega gaman. Hjölli var enn í gallabuxunum sem hann klæddist í denn með hárið niður á herðar og Maggi og Fríða tjúttuðu í taumlausu tjútti, Belli missti andann er hann átti að flytja ræðuna sína og Mæja Bet hljóp í skarðið fyrir bróðir sinn og Bjöggalingarnir voru á sínum stað og skemmtu sér hið besta og maður var manns gaman.

Heimferð er fyrirhuguð á morgun og vænta má þess að Vestfirðir taka á móti Vertinum með gleði og eins gott að vegir verði allir greiðfærir og rennifæri í boði Vegagerðarinnar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband