21.10.2010 | 14:05
Meðmælin
Meðmælabréfið hefur verið geymt í fjársjóðssafninu í áratugi enda eitt af því sem skipti sköpum á sínum tíma. Meðmælin hafa reyndar reynst ágæt heilræði þó svo að Vertinn hafi kannski ekki farið eftir þeim öllum stundum í einu og öllu þá hefur verið gott að hafa þau að leiðarljósi. Minningin um dvölina í Bjarnabúð hjá Bensa og Hiddu hafa ætíð vakið upp góðar minningar og samskipti okkar einkennst af gagnkvæmri virðingu alla tíð. Nú er Bensi Bjarna allur og góður maður genginn.
Bolungarvík 22. des. 1984
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir 7147-7029 til heimilis að Miðstræti 15 Bolungarvík hefur starfað við verzlun mína í rúmlega 2 ár, á árunum 1982/1984.
Hún hefur reynzt prýðileg samstarfs. Áreiðanleg og örugg í störfum.
Lipur, hugkvæm og snyrtileg í umgengni.
Geðgóð, kurteis, glaðlynd í viðmóti og gædd góðlátlegri kímnigáfu. ( Ætti ekki að reykja).
Benedikt Bjarnason
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.10.2010 | 12:50
Prjónakvöldið er í kvöld
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2010 | 18:22
Sýnishorn frá tónleikum Þrastar Jóhannessonar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2010 | 12:40
Lítil ferðasaga - fjórði kafli
Þau voru stór sverðin sem Haraldur hárfagri skildi eftir sig í sínum síðasta bardaga um algjör yfirráð yfir Noregi. Þar með hafði hann unnið alla sem voru honum mótfallnir og gat því gengið frá sverðum sínum í eitt skiptið fyrir öll. Vertinn hefur erft makkann í beinan karllegg frá Haraldi "afa" hárfagra og lokkarnir hafa fylgt forfeðrunum frá ómunatíð þó svo að hárprýði þeirra sem þetta ritar sé með eindæmum. Háraldur og hans menn stungu sverðum þessum niður í nágrenni við Idu heimili og hafa ugglaust bara gleymt þeim þar....
Títtnefnd er þó ekkert sérlega lagin við að beita sverðum í bardögum líkt og forfaðirinn hárprúði enda er vel hægt að vinna orrustur án vopna
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2010 | 21:28
Lítil ferðasaga - þriðji kafli
Lilja fagnaði sextán ára afmælisdegi sínum í Noregi og norska heimasætan Signe bakaði stærðar afmælistertu fyrir Lilju í tilefni dagsins. Afmælissöngurinn var sunginn á báðum tungumálum og ekki var frítt við það að ómurinn hafi yfirgnæft galið í hananum...
sem galaði sem mest hann mátti til að samfagna með afmælisbarninu.
Afmælisgestir biðu þess með mikilli þolinmæði að fá að bragða á góðgætinu sem borið var á borð í tilefni dagsins
kakan var merkt nafni afmælisbarnsins og aldri en lengst til hægri á myndinni má sjá Signe sem bakaði kökuna og skreytti svo myndarlega. Hún er yngst að þrem systrum en sú í miðið, Sólveig, er nú skiptinemi í Dóminíska lýðveldinu og fetar í fótspor systur sinnar hjá AFS.
Svo má auðvitað ekki gleyma körlunum, sem skemmtu sér stórvel við eldamennskuna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2010 | 11:41
Lítil ferðasaga - annar kafli
Það var einstaklega gaman að ganga um gamla bæinn í Stavangri eftir hellulögðum þröngum götunum og virða fyrir sér gamlan byggingastílinn. Borgin var reyndar í ró enda sofna Norðmenn snemma og vakna snemma að sama skapi öfugt við Íslendinga svona almennt.
Brunnurinn þessi sem Lilja beygir sig yfir á myndinni hér neðar er staðsettur við forna götu og hefur án efa svalað þorsta manna frá örófi alda
Ákveðið var að verja einum degi í göngu upp á Prekestolen sem er klettur í 620 metra hæð með þverhnípi niður í Lysefjorden. Leiðina þangað þurfti að hefja á ferð með ferju og þaðan var keyrt upp að fjallinu sem hýsir klettinn.
Þarna má sjá hvernig veðrið lék við ferðalangana á leiðinni með ferjunni út Stavangerfjörðinn.
Þarna má sjá hópinn leggja í hann upp á Prekestolen en sú ganga tók á en var vel þess virði þegar upp var staðið.
Þarna var áð í eitt sinni en gangan upp á klettinn er talin í nokkrum áföngum. Þrír brattir kaflar með urð og grjót upp í mót eru nokkuð erfiðir en þó ekki óyfirstíganlegir. Það mun hafa bjargað títtnefndri að hafa gengið upp á Óshyrnu fyrir margt löngu síðan og þar með öðlast þrótt og þor til að fara alla leið upp á topp.
Þarna má sjá Andra standa glaðbeittan við sprungu upp í Prekestolen
Vertinn þurfti reyndar að glíma við hjartsláttartruflanir og ofsahræðslu, aðsvif og taugatitring en lét sig samt hafa það og fór alla leið.
Upplifunin var stórkostleg enda veðrið eins og best var á kosið. Títtnefnd hefur þá lokið við þá göngu og stefnir ótrauð áfram í ferðalagi lífsins upp fjallatinda og yfir klettasprungur.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2010 | 23:04
Lítil ferðasaga - fyrsti kafli
Verið er að reka endahnútinn á endurbætur á íbúðarhúsinu sem er allt að verða hið glæsilegasta. Það rúmaði alla fjölskyldu títtnefndrar með glans.
Spenningurinn eftir Vertinum var svo mikill að himnarnir hreinlega rifnuðu og það rigndi jafnmikið einn daginn og gert hafði í Noregi undanfarin fimm ár og vegir lokuðust og jarðgöng tepptust. Svo skein sólin svo glatt að annað eins hafði varla gert í mannaminnum og þá skein hún bæði á rangláta og réttláta, annað var ekki hægt. Þá var farið út í garðinn og öll eplin týnd af eplatrénu og síðan var farið með þau í eplapressuna. Úr þeim fengust 52 lítrar að þeim heimsins besta eplasafa sem hugsast getur og Vertinn, sem alla jafna drekkur ekki eplasafa, hreinlega hefði getað drekkt sér í honum þar ytra, svo góður var hann á bragðið. Skógurinn beið svo hljóður eftir að hersingin kæmi til að tína sveppi og þar þurfti að sæta lagni við að týna ekki þá sveppi sem væru óætir. Sveppirnir sem týndir voru í körfuna voru síðan steiktir með beikoni í rjómasósu þegar heim var komið og brögðuðust þeir hreint guðdómlega.
Þórunn sá frosk í fyrsta sinn á ævinni í skóginum en lagði ekki í að reka honum rembingskoss
enda er hún búin að næla sér í prins nú þegar en á myndinni hér ofar má sjá Andra glaðbeittan með systrum sínum í skógarferð.
Þarna stendur hersingin við gamla lest á lestarstöðinni í Stafangri en þarna var ferðinni heitið til Sirivåg til að skoða gamlar hernaðarmynjar frá stríðsárunum og njóta lífsins.
Þarna má sjá krakkana í lestinni á leiðinni.
Þarna er verið að hefja ferð inn göng sem liggja þvers og kruss um klappirnar í fjallinu í Sirivåg en þjóðverjar létu rússneska fanga höggva þau út á stríðsárunum. Þarna voru neðanjarðarbyrgi þýskra hermanna með allskyns gægjugötum og fallbyssuhreiðrum. Það hefði nú ekki verið ónýtt að fá viðlíka vinnuafl og Rússana til að grafa göng sem liggja frá Einarshúsi í fjárhirslur sparisjóðsins en án efa hefði það ekki þótt Vertinum til tekna og vænta má þess að sú er þetta ritar hefði lent í tukthúsinu fyrir athæfið enda veitir sparisjóðnum trúlega ekki af þeim aurum sem enn eru í peningaskápnum.
Þarna má sjá Andra virða fyrir sér eitt hernaðarbyrgið
og þarna er Andri kominn inn í byrgið eftir allskyns krókaleiðum og Pål, pabbi Idu, situr makindalega fyrir utan og sleikir sólskinið.
og þarna eru allir í mesta bróðerni í einu af hernaðarbyrginu því enginn háir stríð í þessum hópi enda friðsælt fólk með afbrigðum.
svo var farið niður á strönd
og sest á kaffihús í Stavangri
sest við gosbrunninn á torginu í Stavangri svona rétt til að hvíla sig
og svo var hoppað í gamla bænum eins og enginn væri morgundagurinn
Dægurmál | Breytt 18.10.2010 kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2010 | 23:50
Myndir frá forsetaheimsókn
Vertinum þykir tilhlýðilegt að birta fyrir ásjónu lesenda myndir sem teknar voru í forsetaheimsókninni hér nýlega en þá notaði Ólafur Ragnar tækifærið þegar hann kom til að snæða í Einarshúsi til að vera viðstaddur opnun Bolungarvíkurganga. Forsetinn fær ekki tækifæri svona dags daglega dags að fá að koma í þetta merka hús sorgar og gleði svo vænta má þess að honum hafa þótt það merkilegt nokk og trúlega hefur honum töluvert þótt til koma. Það var Halldór Sveinbjörnsson ljósmyndari hjá Bæjarins besta sem tók myndirnar sem birtar verða af þessari heimsókn hér á blogginu en innan um má sjá helstu ráðmenn þjóðarinnar og þótt víðar væri leitað. Vertinn ræður þó flestu innan veggja hússins og þó að engin mynd af títtnefndri leynist í þessu myndasafni kemur það ekki að sök í þessu sambandi. Forsetabíllinn sómir sér vel fyrir framan húsið eins og sjá má á myndinni og halda mætti að honum hefði lagt þar frá ómunatíð.
Þarna má sjá þríeyki ráðherra, þingmanna og forseta metta eftir góðan málsverð.
Fleiri myndir má sjá á myndasafninu hér vinstra megin á síðunni
Dægurmál | Breytt 16.10.2010 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2010 | 21:42
Sýnið stillingu um stund
Það væsir ekki um Vertinn í Víkinni um þessar mundir meðan dvalið er í Noregi hjá Idu og hennar fjölskyldu í góðu yfirlæti. Óþarfi þótti þó að mótmæla með þessum ósköpum á Austurvelli þótt títtnefnd og hennar skyldulið yfirgefi landið um tíma og vert er að sína stillingu um stund. Einarshúsið er þó lokað þennan dyntinn fyrir utan að reynt verður að halda úti hefðbundnum dagskrárliðum eins og vanalega og var prjónakvöldið á sínum stað í kvöld og spilavistin verður á föstudaginn að vanda og er það þriðja og síðasta spilakvöldið í þessari röð spilakvölda.
Það er einkar skemmtilegt að upplifa lífið hjá venjulegri norskri fjölskyldu og forréttindi að fá að kynnast þeirra fjölskylduhögum. Búið er að heimsækja farfar og morfar auk þess að kíkt var í kaffi til mormor í dag og veitingar voru svo sannarlega ekki af skornum skammti. Heimili föðurforeldra Idu er í miðri Stafangri og húsið byggt 1890 og opnaðist ævintýraveröld er farið var upp í betri stofuna og sá Vertinn fyrir sér betri stofuna í Einarshúsi í svipuðum stíl.
Farið verður í stóra mollið á morgun sem er nokkuð stærra en Bjarnabúð og Eg til samans eða stærsta mollið í Noregi öllum og vænta má þess að hægt verið að versla eitt og annað því fatnaður virðist töluvert ódýrari hér en í verslunum heima. Matvara og önnur nauðsynjavara er þó talsvert dýrari og bregður títtnefndri stundum í brún er borga þarf brúsann og er hún nú vön dýrtíð svona í seinni tíð.
Fjölmargt er á dagskránni og ævintýrin bíða handan hornsins og fjölmargt sem búið er að ákveða að gera á meðan títtnefnd dvelur hér í vikutíma eða svo. Kannski koma fréttir af því síðar svo sýnið stillingu um stund.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2010 | 17:59
Drepa tímann
Höfuðborgin fóstrar Vertinn um þessar mundir eða þar til íslenska flugfélagið hefur sig í háloftin með títtnefnda innanborðs og skyldulið áleiðst til Noregs. Brugðið var á það ráð svona rétt til að drepa tímann að vagga sér í lendunum og snúa sér í hringi í stórmörkuðum borgarinnar og þar var ekki hægt að sjá að kreppa hafi hreiðrað um sig því þar var kjaftfullt hvert sem litið er og fólk að versla sem mest það mátti. Vertinn passaði að sjálfsögðu upp á budduna enda er innihald hennar frekar rýrt um þessar mundir og vel við hæfi að barma sér þess vegna á blogginu því barlómur getur verið ágætur á stundum þó innistæðan fyrir honum sé kannski ekki alltaf til.
það er þó handleggur að komast frá rekstri eins og Einarshúsi og þar má segja á Vertinn sé algjörlega ómissandi, margt þarf að skipuleggja og hina og þessa hnúta þarf að hnýta. Hin og þessi vinnuhjú taka þó vaktina þegar þau geta en síðan ekki söguna meir. Einarshúsið verður því lokað frá og með mánudegi í eina viku eða svo en samt sem áður munu hefðbundnir dagskrárliðir eins og prjónakvöld og spilavist halda sínu striki að vanda. Vertinn kemur svo alltaf aftur svo það er til einhvers að hlakka fyrir heimamenn og aðra, en svo er það aftur á móti annað mál hvort títtnefndri takist að vera nógu lengi í burtu til að það þyki nokkuð varið í það að hún komi til baka. Það er nú einu sinni svo að nýir vendir sópa ætíð best og lítið varið í þá gömlu amk. svona stundum.
Þjólagahljómsveitin Rósin okkar er á leiðinni vestur til þess eins að leika fyrir heimamenn og aðra gesti. Títtnefnd vildi svo gjarnan að sem flestir myndu sjá sér fært að mæta svo þau hafi amk. upp í ferðakostnað. Þau halda tvenna tónleika eins og áður hefur komið fram og best væri ef allir myndu mæta sem vettlingi geta valdið og skemmtilegast væri ef það yrði fullt hús á báðum tónleikunum. Það er nú kannski til of mikils vænst....en það er alltaf gott að láta sig dreyma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm