Úrslit í spilavist

pu_i_gunni.jpgÞað var Hálfdán Guðröðarson sem fór með sigur af hólmi í spilavistinni en hann hafði 500 stíg eftir þrjú spilakvöld. Hann fékk að launum lopapeysu og var hinn ánægðasti. Tvö voru með jafnmörg stig í kvennaflokki en það voru þau Hálfdán Guðröðar ( sem spilaði sem kona) og Sigríður Jóna Guðmundsdóttir. Hálfdán dró hærra spil og fékk prjónapúða að launum en gaf Siggu Jónu púðann þegar leið á kvöldið. Unnsteinn Sigurjónsson fékk svo verðlaun fyrir flestu stigin í karlaflokki og uppskar lopapeysu fyrir pela að launum. Skammarverðlaun hlutu Svanfríður Kristjánsdóttir og Ólafur Thorarensen og fengu þau bæði lopavettlinga.

Spilað var á fjórum og hálfu borði sem telst nokkuð gott miðað við hve margir af föstu spilamönnunum voru í burtu. Ísfirðingar eru duglegir að mæta og Bolvíkingar einnig. Næst verður spilað eftri tvær vikur.


Spilavist í kvöld

Lopapeysa Gunnu kvennaSpilavistin heldur áfram í kvöld og er það lokakvöld í þriggja kvölda keppni. Aðalvinningurinn er ekki af verri endanum því Gunna Ásgeirs hefur prjónað lopapeysur bæði á karla og konur svo vinningshafinn velur hvora peysuna hann vill eignast. Gunna hefur líka prjónað vinninga fyrri flestu stigin í kvöld í karla og kvennaflokki. Vertinn hefur hinsvega prjónað skammarverðlaunin sem eru svosem ekkert til skammar en það eru prjónavettlingar á hvort kynið fyrir sig, svo það er líka til mikils að vinna að fá fæstu stigin líka. Undanfarið hefur vistin verið vel sótt og spilað á fjórum til fimm borðum og fín stemning svo því fleiri sem mæta því skemmtilegra. Aðgangseyrir er ennþá 500 krónur.

 

 


Frumburðir

Bekkjarsystur með frumburðina sínaÞað voru brosmildar bekkjarsystur sem hittust nýverið með frumburði sína. Eins og sjá má á myndinni er þónokkur aldursmunur á milli drengjanna en sonur Vertsins er orðinn fullorðinn fyrir margt löngu en sonur bekkjarsysturinnar nýborinn í þennan heim. Það eru hartnær 25 ár sem skilja þessi fyrstu börn þessara vinkvenna að, en þegar hugurinn reikar að þeim tíma sem sonurinn fæddist mætti halda að það gerst hefði í gær. Sá litli rúmaðist þó örlítið betur í fangi móður sinnar en sonur þeirrar sem þetta ritar þó það hafi sloppið til rétt á meðan myndin var tekin.


Skammdegisgleði 30. desember

Skammdegisgleði verður haldin í Kjallaranum 30. desember kl.22:00. Þar gefst fólki tækifæri á að mæta á stóra sviðið og látið ljós sitt skína. Karl Hallgríms & Mennirnir sjá um söng og fjör í lok dagskrár og verða einnig með atriði á Skammdegisgleðinni og eru til viðræðu um að leika undir söng þeirra skemmtikrafta sem ætla að troða upp á samkomunni. Hægt er að kveða rímur og fara með ljóð eða segja sögur í bland við íðilfagran söng heimamanna og annarra gesta.

Er þetta kjörið tækifæri til að hittast og koma saman í lok ársins og eiga skemmtilega stund.


Áskorun

Stefnt er að því að hafa skammdegisgleði í Einarshúsi þann 30. desember. Markmiðið er að fá bæjarbúa til að koma saman og hafa gaman og hittast eina kvöldstund. Guðfinnur Einarssson hefur boðað komu sína og ætlar að syngja nokkur lög en það vantar auðvitað einhverja til viðbótar. Skemmtilegast væri þó að fá einhverja sem troða ekki upp svona dags daglega dags og allir eru velkomnir. Þetta er hugsað frá svona kl 21:00 og í tvo tíma.

Hér fylgir þó áskorun til nokkra aðila með hvatnigu um að taka lagið á Skammdegisgleði:

Sigmundur Þorkelsson
Benedikt Sigurðsson
Hjördís Jónsdóttir
Olgeirs-bræður og pabba þeirra
Elísabet Trausta
Bjarna Kristinn
Haltur leiða blinda
Mugga
Arnar blúsara
Ella Ketils eldri
mugison :)
Þorstein Hauk og Lilju
Denna
Gumma Hjalta
Elfar Loga
Magga Trausa..og bara alla þá sem geta hugsað sér að stíga á stokk þetta kvöld og skapa sanna skammdegisgleði.

Sossa Vagns má dusta rykið af sér og fara að láta ljós sitt skína, Mæja Bet má brýna röddina, Jón Steinar Guðmundsson á víst þann draum að stíga á svið og svona má lengi telja.

Hafið samband við Vertinn í síma 864-7901, á netfangi ragna@einarshusid.is eða bara hnippið í títtnefnda á götum úti.


Á hvolf

Vertinn er algjörlega búin að snúa sólarhringnum á hvolf og vakir allar nætur og sefur lengur frameftir en góðu hófi gegnir. Það er auðvitað gott að geta leyft sér slíkan lifnað og telst títtnefnd til forréttinda hópa hvað það varðar.

Margt fer um hugann á nóttum sem þessum og hugurinn reikar um heima og geyma. Jólasagan er í undirbúningi og hugmyndir eru að fæðast í kollinum á þeirri sem þetta ritar. Ef sagan festist niður á blað mun hún kannski birtast á Víkaranum fyrir jólin þe. ef hún verður ekki svo sorgleg að það taki engu tali. Það er reyndar einkenni góðra jólasagna að innihalda viss mikið af dramatísku sorgarþema, eftirsjá eftir því sem maður gerði ekki, eða því sem maður gerði og svo verður allt gott um jólin.

Sagan hans Afa komst ekki á prent fyrir þessi jól en það veit víst enginn ævina fyrr en öll er og hver veit nema hún birtist lesendum áður en yfir líkur þó það megi telja afar hæpið ef miðað er við slóðaskap títtnefndar á ritvellinum um þessar stundir. Það væru nú ágæt eftirmæli að hafa komið sögu þess mæta manns í letur þó títtnefnd sé tæplega til þess fallin að raða lífshlaupi Gaui Harðahnífils á bók enda mikilhæfur maður. Þetta er þó eitt sem margnefnd á eftir að gera og vonandi gefst tími til þess áður en lífskertið slokknar.

Eitt er þó nokkuð öruggt að upplestur úr jólabókum verður í hádeginu á morgun, föstudag en þá mun Benni syngja jólalögin og Sólveig systir hans og Baldur Smári lesa upp úr jólabók. Smurbrauð að hætti hússins verður á boðstólnum og það er víst vissara að fara að sofa svo Vertinn vakni tímanlega í partýið.


Augað

Hið alsjáandi auga öryggiskerfisins í Einarshúsi nemur allt á filmu sem gerist í húsinu og varðveitir þar til yfir líkur. Myndavélar eru hirst og her um húsið sem hafa það verkefni að taka upp á band það sem gerist í húsinu í það og það skiptið og nema hreyfingu af ýmsu tagi en, kerfið sendir boð ef óprúttnir náungar ætla sér að fara inn í húsið óboðnir og gera usla en þá birtist grænn kall á skjánum sem gefur til kynna mannaferðir og símar hringja sem gera eigendum viðvart.

Þetta er auðvitað allt hið besta mál enda gott að geta fylgst með mannaferðum í húsinu og oft á tíðum er það nauðsynlegt, þar sem húsið er á mörgum hæðum og erfitt getur verið að vita hvar fólkið heldur sig og hvar þjónustuna vantar. Allt er svo tekið upp á band og varðveitt í þrjár vikur.

Einhverjum þykir það eflaust óþægilegt að vita af því að upptaka sé í gangi, sérstaklega á góðu kvöldi í Kjallaranum þar sem fólk gjarnan sleppir fram af sér beislinu en það kemur ekki að sök því upptökur verða aldrei skoðaðar nema eitthvað óeðlilegt sé í gangi sem vert þarf að kíkja betur á og á Vertinn þá við ef eitthvað hverfur eða skemmdarverk eru framin eða þvíumlíkt. Þó að flatur lófinn renni óviðeigandi nálægt botninum á eiginkonu náungans eða jafnvel falli niður á lendar mun það ekki koma að sök og engu breyta í þessu samhengi.

Það sem vakið hefur mesta furði frá því að kerfið kom er hve mikið er að gerast í Kjallaranum um hábjartan dag þegar engin er sjáanlegur í myndavélum hússins. Þá kviknar græni kallinn og tilkynnir fólk á ferli sem er hulið er sjónum títtnefndrar og hennar skylduliði. Mikið er greinilega að gerast og margt er um manninn á góðum dögum en það vegur vissulega upp rólegheitin í Einarshúsi svona dags daglega dags þennan dyntinn, því fáir þessa heims koma við inn af götunni og fá sér kaffisopa þessa dagana þó auðvitað sé mikið sé að gerast aðra stundina.

Það er auðvitað vitað mál að margt er um manninn í húsi sem þessu þar sem fjöldinn allur af fólki hefur búið og alið manninn og jafnvel dáið drottni sínum. Vertinn nýtur verndar þeirra allra og andinn er svo góður að leitun er að öðsu eins, enda má glöggt finna velþóknun þeirra á uppgerð hússins.

Þess vegna er því tekið með stóískri ró þó mikill gestagangur sé í húsinu og framliðnir eru velkomnir þó svo að þeir rífi ekkert endilega upp bissnessinn.

Vert er þó að geta þess að þeir sem eftir lifa geta kíkt í kaffi og meðþví á aðventunni milli kl. 14 og 18. Vertinn heldur enn í þá von að bæjarbúa langi til að setjast inn í þetta fallega hús á aðventu og fá sér jafnvel heitt súkkulaði og kannski gulrótarköku til að lyfta sér upp í skammdeginu.


Gatan

Vertinn býr við eina fámennustu götu bæjarins sem einungis telur örfá hús. Búið er í flestum þeirra eða í fjórum af þeim fimm húsum sem standa við götuna og það má trúlega kallast gott ef miðað er við að heilu íbúðahverfin í höfuðborginni sem byggð voru á góðærisárunum sem nú standa auð. Þar átti auðvitað að byggja yfir landsbyggðina sem öll átti að flytjast á mölina með manni og mús og væntanlega halda uppi stöðugri eyðslu í Smáralindinni, því það er jú auðvitað þar sem peningarnir verða til.

Vertinn má vera þakklát fyrir það að oftast logar á ljósastaurunum í götunni eftir að tekur að skyggja varpar það einkar fallegum bjarma á umhverfið. Ekki hefur það reyndar alltaf verið svo og um tíma var allt í myrkri og allir ljósastaurar úti. Þá fór að læðast sá grunar að títtnefndri að nágrannarnir hefðu ekki borgað rafmagnsreikninginn og því hefði Okurbúið slitið alla strengi og slöggt á raforkunni en svo kviknaði ljós um leið og slökkt var á staurunum á Óshlíðinni.

Gatan er vel upplýst um þessar mundir þó svo að efri bærinn sé í niðamyrkri hér og þar og þar varla sjáist á milli húsa vegna dimmu og drunga við einstaka götur. Vertinn veit ekki hvað íbúar hafa gert til að verðskulda þessa niðadimmu, en kannski hefur ekki þótt nauðsynlegt að hafa ljós eftir að læknirinn fór.

Það þarf auðvitað að spara á öllu sviðum á krepputímum og kannski má nurla saman nokkrum aurum í ríkiskassann ef ljósin á landsbyggðinni yrðu bara slökkt í eitt skiptið fyrir öll. Tunglið og stjörnurnar myndu lýsa næganlega upp náttmyrkrið og gera lífið bærilegra í bland við norðuljósin sem myndu lýsa upp allt Djúpið á fallegu vetrarkvöldi og kannski yrði lífið bara enn betra.

Þá mætti hugsa sér að hægt væri að byggja fangelsi í miðri höfuðborginni fyrir raforkusparnað landsbyggðarinnar, því hefur verið fleygt að ekki sé hægt að fara langar vegalengdir með dæmda fanga og því verði tukthúsið að vera sem næst höfuðborginni. Það hljómar örlítið undarlega í því ljósi að spara átti svo í sjúkrahúsum á landsbyggðinni að fárveikt fólk átti að fara með flugi til Reykjavíkur til að fá læknisaðstoð ella deyja drottni sínum ef ekki gæfi að fljúga.

Þetta átti nú ekki að vera ritefnið í kvöld en svona leita orðin í setningar án umhugsunar og fyrr en varir er Vertinn farinn að agnúast út í höfuðborgina sem var íupphafi ekki ætlunin.

Það var víst gatan sem var kveikjan af þessu bloggi og rólegheitin sem hafa einkennt hana undanfarið. Eina lífið í götunni er þegar títtnefnd álpast úr með fánann til að flagga...oftar í hálfa en heila þennan dyntinn og þá sést nágrannakona stundum hlaupa frá sinni flaggstöng í sama tilgangi. Börnin hafa flutt í burtu, sum tímabundið önnur til lengri tíma en einhver búa heima ennþá. Fólkið í götunni eldist þó svo að aldur Vertsins standi í stað eins og allir vita, en þau ár sem títtnefnd dregur frá aldri sínum fara ekki til spillis til allrar lukku, því hægt er að bæta þeim á aldur nágrannakvennanna í einni svipan og eins og hendi sé veifað.

Gatan er þó þráðurinn sem heldur húsunum saman þrátt fyrir allt. Ljósið á staurunum er geislinn sem lýsir og húsin eru skjólið. Það að börnin flytji að heiman er merki um framtíð og það að geta flaggað fyrir þeim sem hverfa á braut táknar að það er líf og það er gott að vera lifandi.

Ég held ég verði að fara að kíkja til Dæju í kaffi.............


Tíminn

Það er alveg klárt mál að einhver óprúttin er að skafa tíma af sólarhringnum í gríð og erg. Dagurinn dugar ekki hvorki til eins eða neins og það er varla kominn dagur þegar dimman dettur á og tími kominn til að fara að sofa.

Það gekk reyndar svo langt í síðustu viku að fimmtudaginn heilan og allan eins og hann lagði sig vantaði inn í vikuna svo minnstu munaði að illa færi því títtnefnd svaf næstum af sér upplestur úr jólabókunum sem vera átti í hádeginu á föstudaginn síðasta. Þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst bara frá upphafi.

Vertinn reynir að bægja þeirri hugsun frá sér að svona háttarlag geti verið byrjun á elliglöpum og telur sér trú um að maðurinn bak við tjöldin sé að verki og steli tíma af títtnefndi. Ætla má að hann sé að geyma tímann til elliáranna svo títtnefnd hafi nægan tíma til að hrella gamalmennin upp úr skónum á elliheimilinu því grunur leikur á að Vertinn verði nokkuð þreytandi og óþolandi á köflum líkt og nú.

Tímaleysið hefur þó engin áhrfi á uppgerðina í Einarshúsi því ótrúlega mikið gerist þessa dagana á efstu hæð hússins því þar mun verða gisting næsta sumar. Langi gangurinn fer að verða klár og þegar gardínurnar verða komnar fyrir gluggann á norðurgafli hússins og aðventuljósið kveikt geta bæjarbúar séð að því verki er lokið.

Auðvitað þarf að mörgu að hyggja í slíkri uppgerð og rekstri sem Einarshúss bara svona yfir höfuð. Eins og tildæmis þegar halda á útitónlistarhátíðina "Þorskinn 2011" mun Vertinn ekki aftur leiga rándýra útikamra frá Ísafirði því það er næstum ódýrara að leiga íþróttahúsið á staðnum svo ekki sé talað um safnaðarheimilið. Kamrar tveir kosta 45 þúsund krónur en íþróttahúsið aðeins 50 þúsund per. dagur og þar eru kynstrin öll af salernum sem hægt er að brúka. Svo þarf ekki að ná í íþróttahúsið inn á Ísafjörð og skila því aftur eftir tónlistarhátíðina eins og gera þarf við kamrana svo þetta er borðleggjandi betra dæmi. Best er þó auðvitað að leiga safnaðarheimilið fyrir 20 þúsund því það er jú styttra að hlaupa þangað til að létta á sér. Þar eru amk. fjögur salerni, tvö fyrir karla og tvö fyrir konur.

Þetta er auðvitað sagt í gríni en auðvitað er full ástæða til að endurskoða verðlagninguna á þessum fyrrnefndu húseignum því það er ekki normalt að það sé dýrara að leiga skítakamra en salina í þessum húsum. Þessi verð eru þó birt með fyrirvara en trúlega má ætla að kamraverðið hafi eitthvað hækkar frá því í sumar.

Leiga á Einarshúsi hækkaði um 500 prósent umsvifalaust þegar þetta varð ljóst en það er nú eiginlega ekki lengur til leigu enda svo glæsilegt hús að verða að fáum er treystandi fyrir því.

Svona er að mörgu að hyggja og eitt af því sem Vertinn þarf klárlega að fara að tileinka sér á ný er bloggið.....þá kannski veit hún hvaða dagur er frá degi til dags og minni hætta á því að hún missi af viðburðum sem hún hefur auglýst sjálf og skipulagt út í ystu æsar.


Tími á blogg

Fyrst að títtnefnd gefur sér tíma til að setjast niður telst tilvalið að blogga um lífið og tilveruna og segja frá því helsta sem á dagana drífur. Helgin sem nú er að renna sitt skeið á enda hefur verið æði löng og ströng enda alsetin jólahlaðborðum og öðrum veisluhöldum. Vaktin getur verið löng þegar svo ber undir en vinnan skemmtileg og fjörug.

Á síðasta hlaðborði fyrir þessi jól, á laugardagskvöldið, ætlaði þakið hreinlega að rifna af Einarshúsi því stemningin var svo yfirdrifin. Söngurinn ómaði um nágrennið og Benni Sig tryllti bókstaflega mannskapinn og Hermann Ási sló ekki slöku við í undirleiknum. Þetta var frábærlega skemmtilegt allt saman.

Áfram hélt fjörið fram á rauða nóttina en Jómmi og Stjáni sáu um stuðið í Kjallaranum og það var gaman og skemmtilegt nýnæmi í því að hafa kránna opna en hún hefur verið lokuð undanfarið enda hefur aðsókn ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Það verður jú að borga sig að halda úti þjónustunni, annars leggst hún af og það er staðreynd hversu andstyggilega það kann að hljóma.

Víðir Ben og Guðný Hildur lásu upp úr jólabókum í hádeginu á föstudaginn var og þar mættu nokkrir bókaunnendur. Sólveig Sigurðar mun lesa upp úr jólabók í hádeginu á næsta föstudag og Benni bróðir hennar ætlar að syngja jólalögin.

Prjónakaffið hefur verið að gera sig og aðsókn að spilavistinni hefur aukist heldur betur og því verður henni haldið áfram eftir áramótin. Vinningarnir glæsilegir og svo verður áfram en vænta má þess að aðeins þurfi að hækka aðgangseyrinn svona til að hafa fyrir vinningum enda hækkar allt þessa dagana sama hvað er.

Athygli er þó vakin á því að aðgangseyrinn að spilavistinni fer allur til kaupa á vinningum og er því ekki nýttur að neinu leyti til að greiða niður milljarðalán sem bankar hafa veitt vinum og velvildarmönnum undanfarin ár. Ekki króna af aðgangseyrinum fer heldur til að greiða afskriftir þessara sömu manna á milljörðum á milljarða ofan sem felldir eru niður með einu pennastriki fyrir vandamenn og besta vini aðal. Það er víst nóg sem títtnefnd og annað venjulegt fólk þarf að reiða út til að standa skil á skuldum fjárglæframanna hér á þessu landi og þeirra sem lifað hafa eins og greifar undanfarið ár fyrir peninga sem teknir hafa verið að láni í íslenskum bönkum fyrir veð í hinu og þessu sem er svo einskis virði nú.

Vertinn er bara hreinlega ekki nógu vel gefin til að skilja hvað gengur á í þessu þjóðfélagi og botnar hvorki upp né niður í þessu ástandi. það er því eins gott að reyna að þrauka og halda áfram að hlúa að sínu. "Gera það sem maður er góður í" hvað sem það er nú, og drattast áleiðis.

Kirkjukórinn átti þó hug og hjarta títtnefndrar og Gunnu vinnukonu í dag og snittur voru smurður og kökur bakaðar af miklum móð í tilefni aðventukvölds í Hólskirkju. Þar komu kirkjugestir fullir af heilögum anda til veislunnar og borð svignuðu undan kræsingum. Þar þurfti Vertinn ekki að breyta vatni í vín en bjó til eðalsúkkulaði úr mjólk og sírísu konsum og gerði það nokkuð vel og brauðið smakkaðist vel.

Það er þó nokkuð nýnæmi í því að koma heim og blogga ögn um ástandið og nokkuð gott bara fyrir svefninn að setja þessar línur á blað...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband