Þorskurinn á YouTube

í boði hins óviðjafnanlega Lýðs og Írisar.

Ágætu karlar!

Kútmagakvöld verður haldið laugardaginn 12. mars kl. 20:00 í Einarshúsi. Maggi Hauks
er yfirkokkur og útbýr dýrindiskrásir úr fiskmeti og Halldór Halldórsson
sér um veislustjórn. Miðapantanir hafnar


Brugðið undir sig betri fætinum

Vertinn brá undir sig betri fætinum og heiðraði Súðvíkinga með nærveru sinni á þorrablótinu í þorpinu á laugardagskvöld. Skemmst er frá því að segja að títtnefnd skemmti sér konunglega í alla staði og dansaði vals og ræl eins og enginn væri morgundagurinn og virti fyrir sér ný andlit þorpsbúa. Það getur verið svo mikil hvíld í því að virða fyrir sér ásjónu einhverra annarra en þeirra sem balsa við svona dags daglega dags og ár frá ári, þó það sé auðvitað fínt líka svona í bland.

Til að kóróna allt saman var títtnefnd kosin í stjórn Raggagarðs-fjölskyldugarðs Vestfjarða eins og hendi væri veifað á ballinu og geri aðrir betur og þá munu leiðir Vertsins og Boggu liggja saman á ný en við vorum miklar vinkonur í denn. Það er nokkuð merkilegt hvað margnefnd getur troðið sér í margar nefndir og ráð svona upp úr þurru og algjörlega án þess að sækjast eftir því á neinn hátt. Raggagarður er þó spennandi verkefni og án efa gefandi en títtnefnd er einnig í stjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða og hefur einkar gaman af því enda er það á áhugasviði margnefndrar. 

Til að mæta auknu álagi í nefndarstarfi hirst og her mun aðkoma að hvers kyns pólitísku starfi hætta fyrir fullt og allt og er niðurskurður á því sviði nú þegar hafinn. Verður ekki staldrað við fyrr en títtnefnd er laus úr þeirri vist en pólitík í dag er á villigötum og tilvalið að stíga niður af þeim vagni á þessum tímapunkti.


Gisting í Bolungarvík

einarshus_i_snjo_2011.jpgVerið er að leggja lokahönd á fimm herbergi á efstu hæð Einarshúss (www.einarshusid.is)sem öll eru með handlaug og verða til leigu frá og með páskum 2011. Þrjú herbergin eru tveggja manna og tvö eins manns. Stór setustofa með aðgengi út á svalir auk tveggja salerna með baðaðstöðu eru einnig á hæðinni. Herbergin eru öll nýendurgerð og í anda þess tíma er húsið var byggt árið 1902. Allir litir á veggjunum eru upprunanlegir en auk þess hefur veggfóðri verið haganlega fyrirkomið í stofunni til að punta hana enn meira. Útsýnið er stórfenglegt og eitt það besta í heimi. Verið er að vinna sögusýningu um fyrri íbúa hússins sem aðgengileg verður gestum og gangandi á veggjum hússins og þar má upplifa sögu hússins sem er stórfengleg.

Þorskurinn 2011

Valdimar, Muggi og OlgeirTónlistarhátíðnn "Þorskurinn" verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 4. júní næstkomandi á sjómannadagshelgi. Gleðilegt er að geta sagt frá því að Elmar Ernir Viðarsson hefur verið ráðinn umsjónaraðili hátíðarinnar í ár og er hann þegar byrjaður að bóka tónlistarmenn til leiks. Því er lag fyrir þá sem vilja troða upp og láta ljós sitt skína að setja sig í samband við Elmar og það fyrr en seinna.

Margir sóttu Þorskinn heim í fyrra enda varð veðurblíðan einstök og á myndinni má sjá þá Valdimar, Muggga og Olgeir taka lagið.


Kjallarakeppni " Drekktu betur"

Gógó upp við súlunaKjallarakeppnin verður haldin í kvöld, föstudagskvöldið 19. feb, kl. 22:30 eða um það bil. Eyþór Bjarnason verður spyrill. Þetta er keppnin sem allir geta tekið þátt í en tveir og tveir eru saman í liði og svarar hvert lið 30 spurningum. Kolamolinn verður á kostakjörum á krepputíma og eru allir hvattir til að mæta. Á myndinni hér til hliðar má sjá Gógó spyrja í kjallarakeppninni en hún var spyrill fyrir nokkrum árum síðan.

Prjónakvöld á miðvikudagskvöld

Prjónakvöld í EinarshúsiPrjónakvöld verður haldið í Einarshúsi á miðvikudagskvöldið kl. 20:00. Hefð er fyrir því að konur hittist og komi saman annan hvern miðvikudag og sumar fá sér jafnvel kökusneið með kaffinu og þá helst væna sneið af gulrótarköku. Þessar konur hafa margt á prjónunum og missa sjaldan niður lykkjur. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Kútmagakvöld

einarshús 25.01.2011Hið árlega kútmagakvöld verður haldið í Einarshúsi 12. mars næstkomandi. Meistarakokkurinn Maggi Hauks hantérar dýrindiskrásir úr fiski auk þess að bera á borð hinn geysivinsæla kútmaga. Halldór Halldórsson fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar verður veislustjóri.


Myndir af verðlaunum í spilavist

Hér má sjá þau verðlaun sem gefin voru í spilavistinn á föstudagskvöldið. Nú þegar er búið að fitja upp fyrir næstu keppni.

Prjónavettlingar karla

Prjónavettlingar karla-skammarverðlaun

prjónavettlingar kvenna

prjónavettlingar kvenna-skammarverðlaun

prjónapeli´

prjónapeli - aðalverðlaun kara

prjónapúði

prjónapúði - aðalverðlaun kvenna

prjónapúði´

lopapeysa- aðalverðlaun eftir þrjú spilakvöld

 


Úrslit í spilavist

pu_i_gunni.jpgÞað var Hálfdán Guðröðarson sem fór með sigur af hólmi í spilavistinni en hann hafði 500 stíg eftir þrjú spilakvöld. Hann fékk að launum lopapeysu og var hinn ánægðasti. Tvö voru með jafnmörg stig í kvennaflokki en það voru þau Hálfdán Guðröðar ( sem spilaði sem kona) og Sigríður Jóna Guðmundsdóttir. Hálfdán dró hærra spil og fékk prjónapúða að launum en gaf Siggu Jónu púðann þegar leið á kvöldið. Unnsteinn Sigurjónsson fékk svo verðlaun fyrir flestu stigin í karlaflokki og uppskar lopapeysu fyrir pela að launum. Skammarverðlaun hlutu Svanfríður Kristjánsdóttir og Ólafur Thorarensen og fengu þau bæði lopavettlinga.

Spilað var á fjórum og hálfu borði sem telst nokkuð gott miðað við hve margir af föstu spilamönnunum voru í burtu. Ísfirðingar eru duglegir að mæta og Bolvíkingar einnig. Næst verður spilað eftri tvær vikur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 635848

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband