Biskups buxur á spilavist

prjónabuxur karlaAnnað kvöld í þriggja kvölda keppni hefst annað kvöld, föstudagskvöld kl. 21:00. Að vanda verða glæsilegir prjónavinningar í verðlaun og hér á myndinni til hliðar má sjá aðalvinning í karlaflokki sem einhver heppin fær að hafa með sér heim. Þessar buxur eru svokallaðar "biskups buxur" enda eru þær með krossmarki á besta stað og fylltar heilögum anda. Þær hafa trúlega stungið eilítið enda eru þær úr lopa svo búast má við að biskupinn hafi þess vegna ekki getað verið í þeim undir hempunni og því hafi nú farið sem fór. Stærðin er medium, miðað við vininn hálfsofandi eða þar um bil en þær teygjast þó eftir þörfum og þenjast út í takt við tíðaranda líðandi stundar.


Flutningar

koniaksstofan.jpgVertinum var ekki lengur stætt á því að hafa koníaksstofuna án þæginda og vegna síendurtekinna kvartana viðskiptavina var náð í sófasettið ofan úr hæstu hæðum og það selflutt niður í Kjallara. Það fer svosem ósköp vel þarna og nú geta gestir notið þess að sitja við eldinn frá kamínunni og haft það kósý. Sumir kalla koníaksstofuna "sleikstofu" því þar skoða skötuhjú gjarnan hálskirtlana hvort í öðru með tungubroddinum sem er svosem títtnefndri að meinalausu svo framarlega sem þar sé látið staðar numið. Þeir sem vilja ganga lengra geta bara leigt sér herbergi þegar gistingin verður tilbúin og unað sér þar við hitt og þetta bak við luktar dyr.

 

Þessir flutningar kölluðu auðvitað á annað sófasett í stofusetti_nyja.jpgstássstofuna uppi og það fannst í næsta byggðarlagi. Það er glæsilegt eins og sjá má á myndinni og kemur án efa frá stórmannlegu heimili í eina tíð. Borðið er úr dánarbúi Magneu Júlíu Þórdísar Ólafsdóttur Haraldssonar stofnanda Fálkans en hún var amma húsbóndans og smellpassar það við settið. Það verður að gæta þess að gestir hússins fái aðeins það besta og njóti sín til fulls meðan á dvölinni stendur. 


Uppselt á kútmagann

Nú er uppselt á kútmagakvöldið uppí salnum og þegar kominn biðlisti. Selt verður í kjallarann meðan húsrúm leyfir.

Ekki dónaleg verðlaun það...

...eða hvað ?

Tátillíur

"skammarverðlaun" næstu spilavistar

 


Minning

Það hrikti í stoðum kirkjunnar á hólnum er Kalli Steini var borinn til grafar í gær. Íslenski fáninn bylgjaðist undan snörpum vindinum er litið var út um kirkjugluggann og harmionikkuhljómurinn átti vel við á kveðjustundinni. Enn einn sonur hinnar bolvísku byggðar fallinn í valinn og horfinn á braut. Pabbi sat traustur við hliðina á Vertinum á kirkjubekknum og títtnefndri var hugsað til þess hve heppin hún væri að eiga hann að ennþá nærri 88 ára gamlan til að koma með sér til messu.

Kalli Steini og Marta voru dugleg að brjóta upp hversdagsleikann og komu reglulega í Einarshús til að fá sér að borða. Þar léku þau jafnan á allsoddi og það var svo gaman að fá þau í heimsókn og stjana við þau enda kunnu þau svo sannarlega að meta það og létu það óspart í ljósi. Í þessum heimsóknum kynntist ég Kalla alveg upp á nýtt enda sat ég oftar en ekki með þeim að spjalli þar sem talað var um alla heima og geima. Honum þótti mikið til  mín koma og mér til hans. Það er ómetanlega minning nú þegar ég veit að hann kemur ekki aftur.

Læt ég með fylgja vers er sungið var fyrir Kalla á hans uppvaxtarárum:

 

Gekk að heiman glaður drengur

gekk hann móðurhúsum frá.

Honum brann í ungum æðum

æsku mannsins ferðaþrá.

Gekk hann horskur gegnum skóginn,

gat hann stefnt á háreist fjöll.

Trén hans bernsku vinir voru

virtust hvísla til hans öll.

Vertu sæll við söknum þín.

Höf. ókunnur


Örfáir miðar lausir

Það er nú einu sinni svo að einungis örfáir miðar eru lausir á kútmagann næstkomandi laugardagskvöld í salinn uppi. Selt verður í salinn niðri ef áhugi er á slíku en þeir sem vilja fá pláss uppi verða að fara að panta. Er það Magnús Hauksson sem kokkar og Halldór Halldórsson sem sér um veislustjórn.

Tómas Rúnar Sölvason spyrill

Tómas Rúnar Sölvason er spyrill í Kjallarakeppni eða " pub quiz" annað kvöld, föstudagskvöld og hefst keppnin klukkan 22:30. Er þetta skemmtilega spurningakeppni sem allir geta tekið þátt í og eru menn hvattir til að mæta og vera með.

Prjónakvöld á miðvikudagskvöldið

p1090033.jpgPrjónakvöldið verður haldið á miðvikudagskvöldið og hefst það kl. 20:00 að vanda. Þá munu hinar mestu prjónakonur kaupstaðarins koma saman og prjóna af miklum móð húfur og vettlinga og aðrar stórglæsilegar prjónaflíkur. Það væri gaman að halda sýningu á þeim vörum sem verða til á þessum prjónakvöldum og stefna öllum þeim sem áhuga hafa á slíku oneftir í vor.

Hver veit nema prjónakonum verði boðið til betri stofu en nú er hún tilbúin til notkunar eða svo til. Senn fer hvert herbergið að klárast á fætur öðru á efri hæðinni og hlutirnir ganga ótrúlega hratt fyrir sig um þessar mundir. Það er víst ekki seinna vænna að fara að klára efri hæðina því í byrjun maí byrja herlegheitin í húsinu er þýskir sjóstangaveiðimenn fara að birtast í herbergin til vikudvalar í senn.

p1090031.jpg Mikil áhersla var lögð á að gera stofuna sem besta úr garði og lítur hún nú út eins og fínasta heldri manna stofa. Veggir voru veggfóðraðir og panellinn málaður í fallegum pastellitum. Skorsteinninn var gerður upp og gömul steypa brotin utan af honum og hann lakkaður líkt og niðri. Gömlu sófasettin sóma sér vel í stofunni og sæti fyrir allt að 15 manns með góðu móti. Þetta verður stofa fyrir þá gesti sem verða í húsinu til næturdvalar en stefnt er að því að gistingin verði tilbúin fyrir páska. Vænta má þó þess að hægt verði að leiga stofuna undir smærri fundi þegar engir næturgestir eru í húsinu.

p1090032.jpgÍ Einarshúsi verða fimm herbergi með handlaug, þrjú tveggja manna og tvö eins manns. Tvö salerni verða á hæðinni með sturtu sem er nokkur lúxus miðað við svona fá herbergi. Útsýnið verður stórfenglegt og engu öðru líkt og Vertinn er þess fullviss að hvergi verður betra að vera. 

p1090026.jpg

Í stofunni er fyrsti innbyggði fataskápurinn í plássinu og einnig er sófasett Einars heitins Guðfinnssonar og Elísabetar komið heim á ný en það var gjöf frá Lilló og Arnari. Það gefur húsinu svo mikið gildi að fá muni með sögu.

Rétt er eftir að finna réttu gardínurnar og myndir á veggina en Nina Ivanova og Ómar Smári eru að vinna sögusýningu sem verður í almennu rými hússins. Vertinn er búinn að vera að safna myndum af vinnukonum og öðrum þeim sem hafa verið í húsinu og þeim verður gerð góð skil á veggjum hússins.


Úrslit

Spilað var á sex og hálfu borði á spilavistinni og er það bara mjög gott. Dídí hlaut var með fæstu stigin í kvennaflokki eða 138 og Víðir bróðir hennar var með fæstu stigin í karlaflokki eða 148 og fengu þau bæði ullarvettlinga. Hrólli fékk flestu stigin í karlaflokki eða 170 og fékk sokka og vettlinga og Systa var með flest stigin í kvennaflokki eða 180 og fékk útprjónað ullarvesti.

Næst verður spilað eftir tvær vikur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 635846

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband