Sumarbústaðaferð

Farið var með heilan sláttutraktor vestur í Dýrafjörðinn um helgina því nú átti aldeilis að slá sumarbústaðatúnið í Hólakoti og gera fínt. Það var svosem ekki að sökum að spyrja að þegar húsbóndinn startaði gripnum fór að rigna en varla hefur komið deigur dropi úr lofti í allt sumar. Það var því ekki hægt að klára sláttinn í þetta sinnið en hafið verk þá hálfnað er eða eitthvað svoleiðis og restin verður bara slegin síðar. Heyskapurinn hjá húsbóndanum fór því fyrir ofan garð og neðan en næg voru verkefnin svosem. Bústaðurinn hefur orðið útundan undanfarin árin en nú skal tekið til hendinni, lagfært og gert fínt.

Trén sem við gróðursettum fyrir 18 árum eru orðin að myndaskógi og bláberjalyngið liggur freistandi í túnfætinum innan um mósagróna steina og annan gróður. Mikil skógrækt er í dalnum og innan tíðar verður þetta algjör paradís á jörð.  


Langþráð blogg

Heldur betur hefur drifið á daga Vertsins í Víkinni undanfarið og myndi það æra óstöðugan að telja allt það upp. Títtnefnd er hætt að velta sér upp úr veikindunum svona að mestu leyti, gleypir þær pillur sem þarf og innportar beinþéttilyfið endrum og sinnum í gegnum fína stálbrunninn og lífið heldur áfram. Heilsan er nokkuð góð, þrekið að koma en bakið veikt, eins og mér var nánast lofað. Engin merki eru um sjúkdóminn í blóðinu svo hann virðist horfinn og lætur vonandi aldrei á sér kræla meir. Kerling á mínum aldri getur kannski ekki ætlast til að vera eins og unglamb eftir svona veikindatörn og því er í lagi að sætta sig við smábakvesen. Það borgar sig annars ekkert að vera að hugsa of mikið um  sjúkdóminn, heldur njóta dagsins í dag eins og frekast er kostur og lifa lífinu lifandi, því ekki gerir maður það eftir að maður er dauður, það eitt er víst.  

Magni Þór sex viknaÉg upplifði af fá að vera viðstödd eitt hið mesta kraftavert lífs míns frá því að kraftaverkabörnin mín fæddust, þegar litli ömmustrákurinn minn fæddist þann 20. júní síðastliðinn. Ég var búin að láta mig dreyma um þessa stund í allan vetur og það var ólýsanlegt að fá hann í fangið í fyrsta sinni og fá að dást að þessum litla dreng sem var svo fullkominn í alla staði. Það er ekki hægt að vera að velta sér upp úr sorg og sút þegar maður á hlutdeild í slíkum gullmola. Ungu foreldrarnir gæta hans svo einstaklega vel en amma gamla fær þó að knúsast með hann að vild, skilar honum þegar hann er farinn að orga og svoleiðis. Ég fæ hann svo mjúkan og hlýjan upp í rúmið mitt á morgnana, ekki snemma sko því ég þarf auðvitað að sofa þar til klukkar er langt gengin í hádegi, og það eru sko sannarlega forréttindi, lukka og lán. 

Hann var skírður fyrir stuttu og ekki þýddi að fá neinn almennan prest til verksins því biskupinn yfir Íslandi kom eins og kölluð til að gefa drengnum nafnið Magni Þór.  Þá var mikið um dýrðir eins og gefur að skilja. Tilhlýðilegt þótti að smella af nokkrum myndum og svona til glöggvunar fyrir lesendur þá er þetta biskupinn sjálfur sem stendur við hliðina á Vertinum í Víkinni á myndinni hér til hliðar.Biskupinn og Vertinn

Veðrið hér vestra hefur leikið við mig síðan ég kom heim. Mér finnst alltaf vera sól og blíða. Ég reyni að ganga og hjóla þegar ég nenni og hvíli mig þess á milli. Fer reglulega oní Einarshús og gef fyrirskipanir hægri vinstri og derri mig og ríf kjaft en þrátt fyrir það sýna mér allir þolinmæði.  Hárið sprettur á toppstykkinu og krullast grásprengt í allar áttir eins og vera ber svo allt er eins og blómstrið eina.

FjölskyldanBúið er að vera frekar gestkvæmt í sumar sem er bara gaman. Húsbóndinn hefur verið að smíða pallinn út í garði og tilvalið var því að mynda alla fjölskylduna saman en Andri og Þórunn, Ida skiptineminn okkar og Þorbjörn kærastinn hennar voru heima nýverið ásamt Elsu lögfræðinema sem vinnu myrkrana á milli í Einarshúsi í sumar, Lilju ungamömmu, Antoni og Jóni. Þar má sjá hve Vertinn hefur margfaldað sig bæði í ummáli, rúmmáli, mittismáli og umfangi öllu.

Það er lán skal ég segja ykkur, mikið lán.


Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ágúst 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband