Sumarið er tíminn

Þá er nú kellan búin að vera heima i rétt tæpan mánuð og hefur bara haft það nokkuð gott, amk. er óþarfi að vera að kvarta eitthvað undan heilsufarinu. Ég þykist fær í flestan sjó, en er það að sjálfsögðu ekki og fer nú örlítið fram úr mér á köflum en það kemur bara niður á mér síðar. Ég gríp fram fyrir hendurnar á staffinu í Einarshúsi þegar mér hentar og gef fyrirskipanir hægri vinstri og við það verður það að una. Að flestu öðru leiti er ég til friðs og haga mér skikkanlega, fer út að ganga þegar blíðviðri er í boði og una mér mjög vel að vera komin heim.

Mitt aðalstarf í Einarshúsi þessa dagana er að segja sögu hússins fyrir hópa og þar fæ ég að blaðra viðstöðulaust og læt móðan mása um sögu harma og hamingju og það er bara fínt enda reglulega skemmtilegt. Þá eru það aðrir sem sjá um eldamennskuna sem er nokkuð nýnæmi fyrir mig en það virðist ganga vel að venja sig á það að gera lítið sem ekki neitt.

Ég er búin að afrek það frá því að ég kom heim að verða opnustúlka hins margfræga slúðurblaðs "Séð og heyrt" en þar var haft viðtal við okkur hjónin vegna rekstursins í Einarshússins. Þar var aldur títtnefndrar fullkomlega opinberaður fyrir alvöru og ég sögð 47 innan sviga sem er auðvitað heilagur sannleikur en samt helber lygi því ég hef talið sjálfri mér trú um það að ég sé bara 18 og sé búin að vera það í ansi mörg ár. Blaðið gerir lífið skemmtilegra að sögn blaðamannsins enda lét ég mynda mig í bak og fyrir og bar skallann með stolti.

Hárið er þó farið að vaxa af miklum móð en ekki í samræmi við vöxt hvítu blóðkornanna því ég þurfti að sprauta mig í sl. viku vegna þess að þau höfðu dalað. Það er vonandi bara tilfallandi en ég þarf að koma örar í blóðprufu þess vegna.

Kvenfélagskonur komu færandi hendi þegar ég var nýkomin heim með blómaskreytingu og bók þar sem þær buðu mig velkomna heim með fallegri kveðju í korti. Ég vissi nú eiginlega varla hvort ég átti að hlægja eða gráta og var næstum búin að munstra mig í félagið en lét það bíða um sinn. Svona taka allir vel á móti mér að það er með ólíkindum.

Lilja, ljósberi og Anton eru flutt heim til mín og ég bíð komu barnabarnsins með miklum spenningi. Elsa er væntaleg heim i dag og þá fer nú að færast fjör í heimilið sem fer að verða eins og það á að vera.


Heima

Blessuð sólin hefur varla sest við sjóndeildarhringinn eftir að ég kom heim. Geislar hennar hafa baðað byggðarlagið og þó svo að örlítið kaldur norðanvindurinn bíti kynnar skiptir það engu máli. Vertinn hefur auðvitað verið á faraldsfæti og spókað sig hér og þar í bænum svona eins og gengur. Ég hef fengið blessun bæjarbúa og faðmlög hingað og þangað og það er nú aldeilis ekki ónýtt. Þeir sem hafa ekki knúsað mig að degi til, gera það í draumi að nóttu og best þótti mér að pabbi gamli skyldi taka svo hraustlega utan um mig eina nóttina að ylurinn frá honum fylgdi mér allan daginn. Segið svo að þeir sem eru horfnir séu ekki með okkur áfram.

Jón er byrjaður að vinna í Einarshúsi og hefur þar næg verkefni og ferðamenn þegar farnir að kíkja við. Ég er svona að reyna að hjálpa til eftir fremsta megni en þrótturinn ekkert orðinn í líkingu við það sem hann var. Mér finnst ég eiginlega fyrst vera veik núna þegar ég er komin í mitt rétta umhverfi og ætla mér að gera allt sem ég gerði áður en er ekki fær um það. Það mun þó koma í fyllingu tímans.

Ég hef svosem ekkert pælt í því að bjóða mig fram til forseta Íslands en þá myndi mitt fyrsta verk vera að færa forsetabústaðinn hingað vestur. Ef 1500 manns koment við þetta blogg mun ég án efa hugsa málið og jafnvel fara fram ef vel liggur á mér. Ég hef aftur á móti fengið stuðning við að taka við prestembættinu hér þegar Agnes prestur yfirgefur svæðið en ég veit ekki hvort það á við mig. Er ansi hrædd um að ræðurnar yrðu oft skrautlegar hjá mér en ég gæti svosem blessað söfnuðinn í bak og fyrir svona endrum og eins. Ég gæti auðvitað sinnt prestembættinu á sunnudögum og forsetaembættinu hina dagana ef því er að skipta en trúlega er ég ekki rétta manneskjan í það. Hver ætti þá að ráðskast með allt og alla oní Einarshúsi mér er bara spurn?

Það er gott að vera komin heim og allt er í himnalagi.


Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband